Fleiri fréttir

Jón G. Guðjónsson | þriðjudagurinn 7. apríl 2015 Prenta

Auknar niðurgreiðslur á raforku.

Orkubú Vestfjarða.
Orkubú Vestfjarða.

Fréttatilkynning frá Orkubúi Vestfjarða:
Nú um mánaðarmótin (mars-apríl) hækkar jöfnunargjald ríkissjóðs á dreifingu raforku í dreifbýli hjá Orkubúi Vestfjarða úr 1,55 kr/kWh í 2,17 kr/kWh.

Þá verður einnig innheimt „jöfnunargjald“ sem nemur 0,20 kr/kWh frá og með sama tíma. Jöfnunargjaldið er innheimt bæði í þéttbýli og dreifbýli og rennur í ríkissjóð til að mæta kostnaði við jöfnun milli dreifbýlis og þéttbýlis.

Af þessum sökum lækkar hver kWh í dreifbýli um um 0,42 kr..  Að teknu tilliti til virðisaukaskatts lækkar hver kWh til almennra nota um 0,52 kr.  og  til húshitunar um 0,47 kr..

Að ári liðnu verður síðan lokaskrefið stigið og verð fyrir dreifingu raforku í dreifbýli jafnað til fulls við það verð sem hæst er í þéttbýli.

Niðurgreiðslur  ríkissjóðs til hitunar íbúðarhúsnæðis eru einnig auknar.

Í dreifbýli hækkar rafhitaniðurgreiðslan frá ársbyrjun úr 4,95 kr/kWh í 5,40 kr/kWh.

Í þéttbýli hækkar rafhitaniðurgreiðslan frá ársbyrjun úr 3,61 kr/kWh í 4,02 kr/kWh.

Hjá kynntum hitaveitum hækkar niðurgreiðslan frá ársbyrjun úr 2,90 kr/kWh í 3,06 kr/kWh.

Ef tekið er dæmi af íbúðarhúsi sem notar 40.000 kWh á ári, 6.000 kWh til almennra nota og 34.000 kWh til upphitunar lækkar árlegur orkukostnaður sem hér segir:


Í dreifbýli lækkar árlegur orkukostnaður um                                    35.959 kr.

Í þéttbýli með rafhitun lækkar árlegur orkukostnaður um                  6.437 kr.

Í þéttbýli með kyntri hitaveitu lækkar árlegur orkukostnaður um        4.550 kr.

Athugasemdir

Atburðir

« 2024 »
« Mars »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Úr myndasafni

  • Byrjaðað jafna brunarústir við jörðu 19-06-2008.
  • Afmælisbarnið síunga ásamt gestum.
  • Frá Gjögurflugvelli 27-01-2012.
  • Árnes II-23-07-2008.
Vefumsjón