Fleiri fréttir

Jón G. Guðjónsson | laugardagurinn 1. september 2018 Prenta

Fjallskil í Árneshreppi 2018.

Frá Melarétt í fyrra.
Frá Melarétt í fyrra.

FJALLSKILASEÐILL.

==================

FYRIR ÁRNESHREPP ÁRIÐ 2018

Samkvæmt fjallskilareglugerð Strandasýslu fyrirskipar hreppsnefnd Árneshrepps, fjallskil í

Árneshreppi árið 2018 á eftirfarandi hátt.

Leitarsvæði séu þrjú. Réttardagur á fyrsta leitarsvæði sé í Melarétt laugardaginn 15. september 2018 og af öðru og þriðja leitarsvæði í Kjósarrétt laugardaginn 22. september 2018

SMÖLUN VERÐI HAGAÐ ÞANNIG:

FYRSTA LEITARSVÆÐI:

Leitardagar séu tveir. Fyrri daginn, föstudaginn 14. sept. 2018, sé svæðið norðan

Ófeigsfjarðar leitað eftir því, sem þurfa þykir og komið að Ófeigsfirði um kvöldið. Síðari daginn,

laugardaginn 15. september 2018, sé fjalllendið austan Húsár leitað, að Reykjarfjarðartagli um Sýrárdal og Seljaneshlíð. Einnig skal leita svæðið út með Glifsu, um Seljadal og Eyrardal, að Hvalhamri. Féð verði rekið yfir Eyrarháls og réttað á Melum.

 

BJÖRN TORFASON MELUM ER BEÐINN AÐ STJÓRNA LEITINNI

og huga að fyrirstöðu á Eyri seinni daginn.

Svæðið leiti 14 menn. Þessir leggi til menn:

Hávarður Benediktsson, Kjörvogi..................................................... 1 mann

Guðlaugur Ágústsson, Steinstúni....................................................... 3 menn

Sigursteinn Sveinbjörnsson, Litlu-Ávík............................................. 1 mann

Valgeir Benediktsson, Árnesi 2.......................................................... 1 "

Ingólfur Benediktsson, Árnesi 2..........................................................1 "

Björn Torfason, Melum.......................................................................5 menn

Sigursteinn Sveinbörnss.Litlu-Ávík og Guðlaugur A, Steinstúni .......1 mann

Hávarður Kjörvogi og Ingólfur Árnesi................................................1 mann

ANNAÐ LEITARSVÆÐI: Leitin hefst við Naustvíkurgil og Búrfell, laugardaginn 22.september 2018 milli þessara staða fram að Reykjafjarðartagli og til sjávar í Reykjarfirði og síðan til Kjósarréttar og réttað þar.

INGÓLFUR BENEDIKTSSON, ÁRNESI 2 ER BEÐINN AÐ STJÓRNA LEITINNI

Svæðið leiti 16 menn. Þessir leggi til menn:

Sigursteinn Sveinbjörnsson, Litlu-Ávík.................................................... 2 menn

Ingólfur Benediktsson, Árnesi 2................................................................ 4 menn

Hávarður Benediktsson, Kjörvogi..............................................................3 menn

Guðlaugur Ágústsson, Steinstúni...............................................................2 menn

Kristján Albertsson,Melum...........................................................………..1 mann

Björn Torfason Melum …………………………………………………….3menn

Sigursteinn Litlu-Ávík og Ingólfur Árnesi..................................................1 mann

ÞRIÐJA LEITARSVÆÐI:

Leitin hefst við Búrfell, laugardaginn 22. september 2018. Leitað verði fjalllendið frá

Búrfelli út Kjósarfoldir, með Háafelli, og til sjávar, að Kleifará. Féð verði síðan rekið til Kjósarréttar og réttað þar.

BJÖRN TORFASON, MELUM ER BEÐINN AÐ STJÓRNA LEITINNI.

Svæðið leiti 13 menn. Þessir leggi til menn:

Sigursteinn Sveinbjörnsson, Litlu-Ávík.................................................... 2 menn

Björn Torfason, Melum ..........................................................................   6 menn                    

Ingólfur Benediktsson Árnesi......................................................................1 mann

Hávarður Benediktsson, Kjörvogi............................................................. .2 menn

Guðlaugur Ágústsson, Steinstúni ……………………………………….....2 menn

Leitarmenn eru beðnir að hafa samband við leitarstjóra, hver á sínu svæði daginn fyrir leitardag.

Þar sem ekki er skipulögð leit á innsta afrétti hreppsins, þ.e. innan Kleifarár er því hér með komið á framfæri, að sjáfboðaliðar eru vel þegnir til smölunar dagana áður, en réttað er í Kjósarrétt.

Um óskilfé gilda venjulegar fjallskilareglur.

Góðir lesendur. Fjallskilaseðillinn er í heild sinni undir liðnum fréttir, ef smellt er á fréttir hér vinstra megin þá kemur flipi Fjallskil 2018 þar undir.

Athugasemdir

Atburðir

« 2024 »
« Mars »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Úr myndasafni

  • Björn Torfason heldur ræðu.Barnabarn hans fylgist með afa sínum.
  • Mikil froða eða (sælöður),myndaðist í Ávíkinni í miklu brimi í óveðrinu 10. september 2012,engu líkara var en helt hefði verið fleiri þúsund lítrum af sápu í sjóinn.
  • Unnið við sperrur.29-10-08.
  • Borgarísjakabrot útaf Lambanesi 16-09-2003.
Vefumsjón