Fleiri fréttir

Jón G. Guðjónsson | mánudagurinn 17. maí 2010 Prenta

Fyrri styrkúthlutun Menningarráðs Vestfjarða árið 2010.

Kynntur var minnisvarði eða listaverk til minningar um Gísla Jónsson á Bíldudal.
Kynntur var minnisvarði eða listaverk til minningar um Gísla Jónsson á Bíldudal.
1 af 2

Fimm verkefni fengu milljón í styrk frá Menningarráði Vestfjarða.

Fyrri styrkúthlutun Menningarráðs Vestfjarða árið 2010 fór fram við hátíðlega athöfn á Skrímslasetrinu á Bíldudal þann 15. maí kl. 15:00. Flutt var tónlist og haldin erindi, Skrímslasetrið kynnt og skoðað, auk þess sem styrkvilyrði voru afhent og að sjálfsögðu var boðið upp á kaffi og vöfflur á eftir. Umsóknir til Menningarráðsins að þessu sinni voru 78 talsins, en alls fengu 34 verkefni stuðning að upphæð 15 milljónir samtals. Þeim fækkaði þó um eitt áður en að úthlutun kom, því einn styrkurinn var afþakkaður þar sem forsendur fyrir verkefninu höfðu breyst og það var ekki lengur framkvæmanlegt. Aftur verður auglýst eftir styrkumsóknum í haust.

Eftirtaldir aðilar og verkefni fengu stuðning frá Menningarráði Vestfjarða í maí 2010:

Í einni sæng: Skáldið á Þröm - 1.000.000 Melrakkasetur Íslands: Sýning Melrakkaseturs Íslands - fræðslu miðlað til barna - 1.000.000 Skjaldborg - hátíð íslenskra heimildamynda: Skjaldborg - hátíð íslenskra heimildamynda 2010 - 1.000.000 Act alone: Act alone leiklistarhátíð 2010 - 1.000.000 Við Djúpið, félag: Tónlistarhátíðin Við Djúpið 2010 - 1.000.000

TOS ungmennaskipti: Vestfirska Veðurvölundarhúsið - 800.000 Vestfirska forlagið: Mannlíf og saga fyrir vestan fyrr og nú.

Úrval frásagna á ensku af Vestfirðingum í blíðu og stríðu - 750.000 Sauðfjársetur á Ströndum: Hrútar - heimildamynd - 700.000 Í einni sæng, Íslandssaga, Sigurður Ólafsson: Vaxandi Tungl - 700.000

Jóhann Ágúst Jóhannsson: Pönk á Patró - 600.000

Kómedíuleikhúsið: Leiklistarskóli Kómedíuleikhússins - 600.000 Menningarmiðstöðin Edinborg, Ísafirði: Listviðburðir í

Edinborgarhúsi 15. apríl 2010 - nóvember 2010 - 600.000

Vesturbyggð: Sagafjords - ferðumst og fræðumst 2010 - 600.000

Gautshamar ehf: Til móts við fornan sið - 500.000 Minjasafn Egils Ólafssonar: Félagslíf í Breiðafjarðaeyjum - 400.000 Fólkvangur ehf fyrir Passport Kvikmyndir: Norð Vestur - 400.000 Björgvin Bjarnason: Vegur sem var - Myndir af Óshlíð - 350.000 Félag áhugamanna um skrímslasetur: Útgáfa á Skrímslatali eftir Þorvald Friðriksson - 300.000

Sigríður Hafliðadóttir: Sýning á gömlum munum á Litlabæ - 250.000 Sumarmarkaður Vestfjarða: Sumarmarkaður Vestfjarða 2010 - söguskilti - 250.000 Gíslastaðir Haukadal: Einstök sýning - Ísleifur Konráðsson - 250.000

Þóra Sigurðardóttir og Björn Samúelsson: DALIR og HÓLAR - Landslag 2010 - 200.000 Birgir Örn Sigurjónsson: Útgáfutónleikar Biggabix um Vestfirði - 200.000 Þröstur Jóhannesson: Svo langt sem það nær - tónleikaferð - 200.000 Minjasafn Egils Ólafssonar: Skæði - 200.000 Leikfélag Hólmavíkur, Grunnskólinn á Hólmavík, Tónskólinn á Hólmavík:

Það er gaman að leika! (Áhugaleikarinn) - 200.000

Jón Þórðarson: Sögur úr pokahorninu - 150.000 Valgerður Rúnarsdóttir: Var það Gangári? - 125.000 Sögumiðlun ehf: Rit um bæjarbrag og atvinnulíf á Ísafirði á fjórða og fimmta áratug 20. aldar - 100.000 Claus Sterneck: Pictures - and their noises - 75.000

Þá var ráðstafað fjármagni í þrjú samstarfsverkefni Menningarráðs með öðrum

aðilum:

Samstarf: Safna-, setra- og sýningaklasi á Vestfjörðum - 200.000

Samstarf: Félag vestfirskra listamanna - 150.000

Samstarf: Námskeið um viðburðastjórnun - 50.000

 

Athugasemdir

Atburðir

« 2024 »
« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Úr myndasafni

  • Íshrafl í Hvalvík 13-03-2005.
  • Frá snjómoksri inn með Reykjarfirði.
  • Ferðafélagshúsið og tjaldsvæðið.
  • Ragnheiður Edda Hafsteinsdóttir útibústjóri útibús. ksn og  póstmeistari skálar við Jón Guðbjörn sextugann.
Vefumsjón