Fleiri fréttir

Jón G. Guðjónsson | þriðjudagurinn 10. ágúst 2010 Prenta

Íslandsmeistaramót í hrútadómum og Þuklaraball.

Hrútaþukl á laugardaginn 14.ágúst.
Hrútaþukl á laugardaginn 14.ágúst.
1 af 2
Það verður sannkölluð stórhátíð í Sauðfjársetrinu í Sævangi á Ströndum laugardaginn 14. ágúst kl. 14:00 og gott tækifæri fyrir Árneshreppsbúa að renna suður á bóginn og sletta aðeins úr klaufunum! Þeir hafa enda náð langbestum árangri allra sveitarfélaga í þessari frómu keppni undanfarin ár.   Þá verður haldið í áttunda sinn Íslandsmeistaramót í Hrútadómum - venjulega kallað hrútaþukl - en þessi íþróttagrein hefur smám saman náð almennri hylli landans síðan Sauðfjársetrið hóf að halda mótið árið 2003. Um kvöldið verður síðan haldið Þuklaraball í félagsheimilinu á Hólmavík með sveiflukónginum Geirmundi Valtýssyni. Nóg verður um að vera; ókeypis verður inn á safnið og sýningu þess, Strandahestar bjóða upp á hestaferðir, ljúffengt kaffihlaðborð verður í boði í Kaffi Kind, skemmtiferðir verða farnar í dráttarvélavagni og leiktæki verða staðsett á íþróttavellinum. Reyndir og óreyndir þuklarar hvaðanæva að af landinu eru boðnir innilega velkomnir á þessa miklu hátíð.

Hrútadómarnir sjálfir fara þannig fram að Jón Viðar Jónmundsson ráðunautur og æðsti sauðfjárspekúlant Íslands fer fyrir dómnefnd  sem metur fjóra íturvaxna hrúta með nútíma tækjum og tólum og raðar þeim í gæðaröð fyrirfram. Síðan reyna keppendur sig við matið á hrútunum með hendur og hyggjuvit að vopni og reyna að komast að sömu niðurstöðu og dómararnir. Þeir óvönu láta duga að raða hrútunum í sæti frá eitt til fjögur og færa rök fyrir máli sínu. Þeir vönu fara hins vegar eftir stigakerfi sem bændur gjörþekkja. Afar veglegir vinningar eru í boði fyrir sigurvegara í báðum flokkum - t.d. hafa þrír efstu í vana flokknum undanfarin ár fengið meðal annars nokkra skammta af hrútasæði frá Sauðfjársæðingastöð Vesturlands!

Um kvöldið verður síðan hægt að kíkja á veglegt matarhlaðborð á Café Riis á Hólmavík milli kl. 18:00 og 21:00 og smella sér síðan á Þuklaraballið svonefnda sem fer fram í Félagsheimilinu á Hólmavík, en þar spilar skagfirski sveiflukóngurinn Geirmundur Valtýsson ásamt hljómsveit sinni fyrir dansi. Aðgangseyrir að dansleiknum er aðeins kr. 2.500, en ekkert kostar inn á hrútaþuklið né að taka þátt í því. Það er því tilvalið fyrir stóra sem smáa að gera sér ferð á Strandir á næstu helgi til að taka þátt í einhverri óvenjulegustu íþróttagrein heims.

Athugasemdir

Atburðir

« 2024 »
« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Úr myndasafni

  • Nýr ljósastaur komin upp,13-11-08.
  • Ásbjörn grefur 22-08-08.
  • Séð yfir Trékyllisvík og til Norðurfjarðar af Reykjaneshyrnu.Mynd Jóhann.
  • Hringnum lokað suðvestur hlið.28-10-08.
Vefumsjón