Fleiri fréttir

Jón G. Guðjónsson | föstudagurinn 19. apríl 2013 Prenta

Kjosturett.is fer gríðarlega vel af stað.

Síðan tengist ekki neinum flokki, framboði eða stjórnmálahreyfingu.
Síðan tengist ekki neinum flokki, framboði eða stjórnmálahreyfingu.
1 af 2
Ný, óháð vefsíða, www.kjosturett.is, er komin í loftið. Þar geta kjósendur fundið upplýsingar um stefnu allra þeirra 15 flokka og framboða sem bjóða fram lista til Alþingis í komandi kosningum 27. apríl.
 

Á fyrsta sólarhringnum hafa um 6.200 heimsótt vefinn, sem jafngildir því að hann sé u.þ.b. 15. vinsælasti vefur landsins samkvæmt samræmdri vefmælingu Moedernus.is.

 

Þetta jafngildir líka því að þriðjungur þeirra 18.670 sem nú kjósa til Alþingis í fyrsta sinn hafi heimsótt vefinn á einum sólarhring.


Síðan tengist ekki neinum flokki, framboði eða stjórnmálahreyfingu. 
 
Síðan er hugsuð sem hlutlaus upplýsingamiðill um kosningar fyrir almenning í landinu. Mikið er lagt upp úr því að upplýsingarnar séu samræmdar og aðgengilegar. Á síðunni má finna stefnu framboðanna 15 í 11 málaflokkum, auk hagnýtra upplýsinga og tengla.
 
Slagorð síðunnar er: Taktu upplýsta ákvörðun - kjóstu rétt.
 
Þrír ungir menn standa að baki síðunni; Ragnar Þór Valgeirsson vefsmiður, Kristján Ingi Mikaelsson forritari og Ásgeir Vísir grafískur hönnuður.
Kristján Ingi og Ragnar Þór stunda nám við Verzlunarskóla Íslands en eru jafnframt liðtækir í vefsíðugerð. Þeir standa meðal annars að rafræna skiptibókamarkaðnum www.skipta.is.  Ásgeir Vísir er nýútskrifaður grafískur hönnuður og fyrrverandi nemi við Verzlunarskólann.
 
Kveikjan að síðunni var sú upplifun þeirra Ragnars Þórs, Kristjáns Inga og fleiri ungmenna, að erfitt væri að átta sig á stefnu allra þeirra flokka og framboða sem í boði eru. Þeir ákváðu að grípa til sinna ráða og bera saman flokka og framboð með skipulegum hætti.www.kjosturett.is er afrakstur þess.
 
Þeir Kristján Ingi og Ragnar Þór eru reiðubúnir að veita nánari upplýsingar eða viðtöl, hvort sem er um virkni síðunnar, hugmyndafræðina að baki eða hvernig Alþingiskosningarnar horfa við ungu fólki.
 
Kristján Ingi Mikaelsson: 696-4523
Ragnar Þór Valgeirsson: 663 9889
Ásgeir Vísir: 696 1647

Stefnt er að því að setja fram sambærilegar upplýsingar fyrir aðrar kosningar í framtíðinni, hvort sem er til sveitastjórna, forsetakosningar eða jafnvel Eurovision.

Athugasemdir

Atburðir

« 2024 »
« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Úr myndasafni

  • Tekið á móti plötum á þaki 11-11-08.
  • Frá saumaklúbb á Krossnesi 18 febrúar 2012.
  • Húsið 29-10-08.
  • Þegar snjór og sjór koma saman.08-01-2001.
  • Hurð á geymslu NA,18-11-08.
Vefumsjón