Fleiri fréttir

Jón G. Guðjónsson | þriðjudagurinn 10. maí 2011 Prenta

Landstólpinn – árleg viðurkenning Byggðastofnunar.

Séð yfir Trékyllisvík og Norðurfjörð af Reykjaneshyrnu.Mynd Jóhann K.
Séð yfir Trékyllisvík og Norðurfjörð af Reykjaneshyrnu.Mynd Jóhann K.
Ársfundur Byggðastofnunar verður haldinn í Vestmannaeyjum miðvikudaginn 25. maí n.k. Á fundinum verður í fyrsta sinn veitt viðurkenning Byggðastofnunar undir heitinu „Landstólpinn. Samfélagsviðurkenning Byggðastofnunar".

Viðurkenningin skal veitt einhverjum þeim sem hefur vakið jákvæða athygli á landsbyggðinni með verkefni, starfsemi, umfjöllun á opinberum vettvangi eða með öðru móti. Viðkomandi gæti bæði hafa vakið athygli á byggðamálum, landsbyggðinni í heild, eða einhverju tilteknu byggðarlagi og þannig aukið veg viðkomandi samfélags.

Um getur verið að ræða einstakling, fyrirtæki, stofnun eða sveitarfélag.

Við óskum eftir ábendingum um handhafa þessarar viðurkenningar. Að ábendingum fengnum mun dómnefnd velja úr. Eftirfarandi þætti skal hafa í huga við valið:

Hvort viðkomandi hafi:

Gefið jákvæða mynd af landsbyggðinni eða viðkomandi svæði

Aukið virkni íbúa eða fengið þá til beinnar þátttöku í verkefninu

Orðið til þess að fleiri verkefni/ný starfsemi verði til

Dregið að gesti með verkefni eða umfjöllun sinni

Ekki er nauðsynlegt að öllum þessum atriðum sé fylgt eftir, heldur séu þau höfð til hliðsjónar.

Ábendingum skal skila á heimasíðu Byggðastofnunar með því að fylla út formið hér.

Nánari upplýsingar gefur Sigríður K. Þorgrímsdóttir í síma 455 5400.

Frestur til að koma ábendingum til skila rennur út mánudaginn 16. maí 2011.Senda inn tillögu.
Segir í fréttatilkynningu frá Byggðastofnun.

Athugasemdir

Atburðir

« 2024 »
« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Úr myndasafni

  • Finnbogastaðir fyrir brunann.
  • Naustvík 17-08-2008.
  • Ragna-Badda og Bía.
  • Snjókerling við Bæ í Trékyllisvík.09-04-2009.
  • Söngur.
Vefumsjón