Fleiri fréttir

Jón G. Guðjónsson | laugardagurinn 8. desember 2012 Prenta

Leynivopn Vestfirska forlagins slær í gegn.

Þrautaverkefni fjölskyldunnar, jólahefti, eftir Björk Gunnarsdóttur.
Þrautaverkefni fjölskyldunnar, jólahefti, eftir Björk Gunnarsdóttur.
Hjá Vestfirska forlaginu er komin út bókin Þrautaverkefni fjölskyldunnar, jólahefti, eftir Björk Gunnarsdóttur kennara frá Bolungarvík. Hér er um að ræða allskonar þrautir, gátur, krossgátur, völundarhús og sjónhverfingar svo eitthvað sé nefnt. Gömlu góðu gáturnar svo sem eins og Hvað hét hundur karls,  Hver er sá veggur, Hvað er það sem hoppar og skoppar, svo dæmi séu nefnd og allir lærðu í gamla daga, eru hér rifjaðar upp. Mikið er um þroskandi hugleiðingar eins og þessa: " Hvað eiga þeir sameiginlegt sem stíga í vænginn við einhvern, gera hosur sínar grænar, ganga með grasið í skónum, eru á biðilsbuxum?"

Þrautaverkefnin hennar Bjarkar eru vissulega mjög hjálpleg við að brúa kynslóðabilið, ef það er fyrir hendi. Þau eru þroskandi fyrir alla aldurshópa og mátulega erfið að glíma við. Ákveðið var á síðustu stundu aðgefa þessa bók út sem nokkurskonar leynivopnVestfirska forlagsins í jólabókaflóðinu og láta á það reyna hvort þörf væri fyrir slíkt efni á markaðnum. Reynslan sýnir að svo virðist sannarlega vera. Segir í fréttatilkynningu frá forlaginu.

Athugasemdir

Atburðir

« 2024 »
« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Úr myndasafni

  • Jón Guðbjörn og Guðrún smelltu af samtímis.Og þetta varð útkoma Jóns G.
  • Borgarísjakar útaf Felli 07-04-2004.
  • Ástbjörn smiður á einni hækju.08-11-08.
  • Hilmar og Gunnlaugur.08-11-08.
  • Súlan sem er 18,5 m löng komin á flot.
  • Gamla hreppstjórahúsið á Eyri-24-07-2004.
Vefumsjón