Fleiri fréttir

Jón G. Guðjónsson | miðvikudagurinn 20. ágúst 2014 Prenta

Sigurður dýralæknir – afmælisrit.

Sigurður Sigurðarson dýralæknir frá Keldum.
Sigurður Sigurðarson dýralæknir frá Keldum.

Fréttatilkynning:
Vísindamaðurinn, sagnamaðurinn og gleðimaðurinn, í góðri merkingu þess orðs, Sigurður Sigurðarson, dýralæknir frá Keldum, verður 75 ára þann 2. október næstkomandi. Af því tilefni kemur út hjá Bókaútgáfunni Hólum seinni bindið af æviminningum Sigurðar og er það jafnframt afmælisrit hans. Þar segir hann frá lífshlaupi sínu, allt frá dýralæknanáminu í Noregi til þessa dags, og dregur fram í dagsljósið ógrynni sagna af skemmilegu fólki og skemmtilegum viðburðum, þótt vissulega hafi hann fengið sinn skerf af mótlæti og meðal annars verið hótað lífláti. Þá er vísum vitaskuld varpað fram, enda liggur kveðskapur honum létt á tungu og er hann lipur vísnasmiður.

Í fyrrnefndu afmælisriti verður að sjálfsögðu heillaóskaskrá – Tabula gratulatoria – og býður útgefandi öllum þeim sem sýna vilja Sigurði sóma að skrá nafn sitt þar og eignast um leið bókina. Verð hennar verður kr. 6.480 m/sendingargjaldi og er tekið við áskrifendum í netfanginu brynjar@holabok.is og í síma 698-6919.

Athugasemdir

Atburðir

« 2024 »
« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Úr myndasafni

  • Sigursteinn í Litlu-Ávík sagar í uppistöður fyrir Guðmund.01-07-08.
  • Borgarísjaki er ca 4 km austur af Sæluskeri og annar borgarísjaki ca 5 km austur af honum.19-06-2018.
  • Margrét S Nielsen og Sveinn Sveinsson vertar í Kaffi Norðurfirði.12-03-2012.
  • Sperrur hífðar 29-10-08.
  • Maddý-Sirrý og Selma.
Vefumsjón