Fleiri fréttir

Jón G. Guðjónsson | sunnudagurinn 8. mars 2015 Prenta

Stefnumótunarfundur á Hólmavík um ferðaþjónustu.

Fundurinn er á miðvikudaginn 11. Mars,kl:15 til 17 í Hnyðju,Þróunarsetrinu á Hólmavík.
Fundurinn er á miðvikudaginn 11. Mars,kl:15 til 17 í Hnyðju,Þróunarsetrinu á Hólmavík.
1 af 2

Fréttatilkynning:

Fjórðungssamband Vestfirðinga og Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða í samvinnu við Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið og Samtök ferðaþjónustunnar,boða til fundar um mótun stefnu og framtíðarsýnar í íslenskri ferðaþjónustu,miðvikudaginn 11. Mars,kl:15 til 17 í Hnyðju,Þróunarsetrinu á Hólmavík.

 

Á fundinum verður rætt um framtíðarsýn íslenskrar ferðaþjónustu og kallað eftir ábendingum þátttakenda. Markmiðið er að byggja góðan grunn fyrir framtíð ferðaþjónustunnar og stuðla þannig að bættum lífskjörum í landinu. Mikilvægt er að haghafar í ferðaþjónustu hafi aðkomu að verkefninu og geti komið á framfæri ábendingum og leiðum til að efla ferðaþjónustuna og gera hana alþjóðlega samkeppnishæfa.  

 

Verkefnahópi ráðuneytisins og Samtaka ferðaþjónustunnar er ætlað gera tillögu að stefnu og framtíðarsýn til lengri tíma og aðgerðaráætlun til skemmri tíma. Stefnt er að því að niðurstöður vinnunnar liggi fyrir í byrjun júní n.k.


Vonast er til að þú hafir lausa stund til þess að mæta. Það er vel þegið að þú takir með þér þá starfsmenn sem koma að þessum málaflokki. Miklar væntingar eru um víðtækt samstarf við mótun stefnunnar.

Athugasemdir

Atburðir

« 2024 »
« Mars »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Úr myndasafni

  • 28-12-2010.Borgarísjakinn sem sést hefur frá Litlu-Ávík hefur nú færst austar og er nú ca 15 km NNA af Reykjaneshyrnu.
  • Kaupfélagshúsið-Íbúðir- Reykjaneshyrna í baksýn. Mynd 20-02-2017.
  • Búið að klæða útskotið þar sem eldhúsið er.03-12-2008.
  • Ásbjörn grefur 22-08-08.
Vefumsjón