Fleiri fréttir

Jón G. Guðjónsson | mánudagurinn 12. nóvember 2012 Prenta

Umhverfisvottaðir Vestfirðir.

Drangaskörð.
Drangaskörð.
Þann 8. nóvember síðast liðinn tóku sveitarfélögin á Vestfjörðum stórt skref inn í framtíðina með því að gerast meðlimir hjá EarthCheck og hafa nú hafið vinnu sem miðar að því að umhverfisvotta öll níu sveitarfélögin á Vestfjörðum. Með þessu eru sveitarfélögin að skuldbinda sig til þess að taka mið af náttúrunni í öllum ákvörðunum sínum og tryggja sjálfbærni þeirra auðlinda sem til staðar eru á svæðinu. Verkefnið er unnið af Fjórðungssambandi Vestfirðinga en hugmyndin kemur upprunalega frá Ferðamálasamtöku Vestfjarða, sem sýnt hefur verkefninu mikinn áhuga. Umhverfisvottun hefur verið eitt af viðfangsefnum síðustu tveggja Fjórðungsþinga og greinilegur áhugi sveitarstjórnafulltrúa á málefninu. Í upphaf ársins 2012 fékkst fjárstyrkur frá umhverfisráðuneytinu vegna undirbúningsvinnu fyrir Umhverfisvottaða Vestfirði og hefur með þeim styrk sem þetta fyrsta skref hefur verið tekið.

EarthCheck eru viðurkennd vottunarsamtök sem hafa höfuðstöðvar sínar í Ástralíu, þau eru einu vottunarsamtökin sem hafa umhverfisvottað starfsemi sveitarfélaga. Á Íslandi er fyrirtækið Grænir hælar umboðsaðilar fyrir EarthCheck, en það er rekið af Guðrúnu Bergmann sem hefur starfað að umhverfismálum, umhverfisvænni ferðaþjónustu og umhverfisráðgjöf í meira en 20 ár. Guðrún vann einnig náið með Snæfellsnesi þegar sveitarfélögin þar fengu vottun frá EarthCheck.  Segir í fréttatilkynningu frá Fjórðungssambandi Vestfjarða.

Athugasemdir

Atburðir

« 2024 »
« Mars »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Úr myndasafni

  • Reykjaneshyrna-Örkin,séð af sjó 18-04-2008.
  • Sveindís Guðfinnsdóttir Flugvallarvörður.
  • Frá brunanum 16-06-2008.
Vefumsjón