Fleiri fréttir

Jón G. Guðjónsson | fimmtudagurinn 4. apríl 2013 Prenta

Úthlutun eftir miðjan apríl.

Alls bárust 125 umsóknir um verkefnastyrki.
Alls bárust 125 umsóknir um verkefnastyrki.
Nú er orðið ljóst að niðurstöður Menningarráðs Vestfjarða vegna styrkumsókna árið 2013 liggja ekki fyrir fyrr en eftir miðjan apríl. Mikill fjöldi umsókna barst að þessu sinni, alls 160 umsóknir, um margvísleg og fjölbreytt verkefni. Ljóst er að umsóknir hafa sjaldan verið betri og vandaðari og fjölmargar skemmtilegar hugmyndir eru þarna á ferðinni. Úrvinnslan stendur sem hæst. Alls bárust 125 umsóknir um verkefnastyrki og er óskað eftir styrkjum að upphæð tæpar 85 milljónir. Kostnaðaráætlun þessara verkefna er alls rúmar 419 milljónir. Þá bárust 35 umsóknir um stofn- og rekstrarstyrki og var beðið um tæpar 63 milljónir í styrki, en kostnaðaráætlanir í þeim flokki hljóða upp á samtals rúmar 207 milljónir.

Athugasemdir

Atburðir

« 2024 »
« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Úr myndasafni

  • Jón G Guðjónsson situr á jaka útá Hjallskerum. Mynd RAX.
  • Allt sett í stóra holu.
Vefumsjón