Fleiri fréttir

Jón G. Guðjónsson | föstudagurinn 11. maí 2012 Prenta

Úthlutun úr menningarsjóði KSH árið 2012.

Ingimundur Pálsson gjaldkeri Björgunarsveitarinnar Dagrenningar tekur á móti viðurkenningu.Myndin er af vef KSH.
Ingimundur Pálsson gjaldkeri Björgunarsveitarinnar Dagrenningar tekur á móti viðurkenningu.Myndin er af vef KSH.

Á aðalfundi Kaupfélags Steingrímsfjarðar þann 2. maí síðastliðinn var tilkynnt um úthlutanir úr menningarsjóði KSH árið 2012 en stjórn sjóðsins kom saman þann 30. apríl og fór yfir innsendar umsóknir. Úthlutað var kr. 300.000 og að þessu sinni voru styrkhafar: Félagsmiðstöðin Ozon ,kr. 50.000 til styrktar starfsemis miðstöðvarinnar. Félagsmiðstöðin er fyrir ungt fólk í Strandabyggð til að hittast, vinna að sköpun og margvíslegum verkefnum og hefur starfsemi miðstöðvarinnar verið einstaklega öflugt á liðnum vetri. Félag eldri borgara í Strandasýslu,kr. 50.000 til árlegrar sumarferðar en að þessu sinni er stefnan sett á Suðurlandið. Í félaginu er 83 félagar úr öllum sveitarfélögum Strandasýslu. Hamingjudagar á Hólmavík,kr. 50.000 vegna Hamingjudaga 2012. Hamingjudagar á Hólmavík voru fyrst haldnir árið 2005 og verða í ár dagana 29. júní til 1. júlí. Von er á fjölbreyttri og skemmtilegri dagskrá að venju og má sjá yfirlit yfir viðburði og dagskrá á www.hamingjudagar.is Sauðfjársetrið á Ströndum,kr. 50.000 til sérsýninga sumarið 2012. Sauðfjársetur á Ströndum fagnar í ár 10 ára starfsafmæli og verður dagskrá sumarsins sérlega vegleg af því tilefni. Skíðafélag Strandamanna,kr. 50.000 vegna Strandagöngunnar 2012. Strandagangan var haldin í fyrsta skipti árið 1995 og er vinsæl keppni meðal skíðafólks um land allt. Skíðafélag Strandamanna hlaut einnig viðbótarúthlutun, kr. 50.000, vegna öflugs frumkvöðlastarfs við uppbyggingu skíðamiðstöðvar í Selárdal. Á aðalfundi Kaupfélagsins var einnig úthlutaður sérstakur styrkur til á Björgunarsveitarinnar Dagrenningar á  Hólmavík. Björgunarsveitin hefur á liðnum vetri sinnt fjöldamörgum útköllum með sóma og ákvað stjórn Kaupfélags Steingrímsfjarðar að veita kr.100.000 styrk til starfs sveitarinnar.

Athugasemdir

Atburðir

« 2024 »
« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Úr myndasafni

  • Drangavík 18-04-2008.
  • Séð yfir Ófeigsfjörð-Seljanes-Drangajökull.
  • Frá Gjögri 04-01-2013.
  • Gengið út fyrir Björg á leið í Ófeigsfjörð.
  • Kort Árneshreppur.
Vefumsjón