Gestabók

Kristbjorg Þ. Ásgeirsdóttir

skrifaði þann 27/12/09 klukkan 17:49

Ynnilegar óskir um friðsælt nýtt ár , til allra vina og vandamanna Austanlands og Vestan
Hugurinn er alldrei langt frá Heimalandinu handan hafsins. Það er ómetanlegt fyrir
okkur sem búm erlendis að geta skoðað allar þessar yndislegu myndir af Íslensku landslagi, bestu þakkir, Kristbjörg

Lydur Sörlason

skrifaði þann 26/12/09 klukkan 10:51

'Oska öllum 'Arneshreppsbúum nær og fjær gleðlegra jóla og gæfuríkt komandi ár. Sérstaklega vil ég þakka fyrir þessa síðu sem ég heimsækji oft mér til mikillar ánægju. Takk Jón.

Torfi Þ. Guðmundsson frá Ófeigsfirði

skrifaði þann 23/12/09 klukkan 16:37

Sendi Árneshreppsbúum bestu Jóla og Nýjárskveðjur.
Vona að árið 2010 verði ykkur öllum hagstætt.

ingibjörg ófeigsdótir

skrifaði þann 14/12/09 klukkan 14:36

Gaman að skoða þessar myndir, þar sem ég átti heima sem barn á Eyri en ættuð ú Ófeigsfirði

Þór Jakobsson

skrifaði þann 09/11/09 klukkan 15:19

Jón G. Guðjónsson

Sæll Jón,
Ég vil nota tækifærið hér í Gestabók til að endurtaka það sem ég hef margsinnis sagt við þig að elja þín við að afla og halda til haga upplýsingum um hafísinn er ómetanleg. Mikilsvert er að geyma annað eintak af hverri mynd á öruggum stað. En sjálfsagt hefurðu haft þann háttinn á.
Með góðri kveðju,
Þór Jakobsson veðurfræðingur

Jón Guðbjörn Guðjónsson

skrifaði þann 26/10/09 klukkan 19:16

Sæl Gunnur þú verður að vera á Facebook til þess og skrifa þar.
Allt gott héðan.
Kveðja frá okkur í Litlu-Ávík.

Oliver H Oliversson

skrifaði þann 26/10/09 klukkan 17:12

Þakka þér fyrir Rúnar.

Gunnur S. Friðriksdóttir

skrifaði þann 26/10/09 klukkan 12:25

Hvar get ég skrifað undir listann um veginn til ykkar ? (Halda opnum í vetur).
Kv. Gunnur

Jósef S Gunnarsson

skrifaði þann 21/10/09 klukkan 09:26

Bestu kveðjur til ykkar Jón og Siggi...

Með kveðju
Jósef G

Gunnur

skrifaði þann 16/10/09 klukkan 14:10

Gunnur og Kolbrún biðja að heilsa öllum sem við þekkjum í Árneshreppi

Rúnar Kristinsson

skrifaði þann 16/10/09 klukkan 10:28

Jóhanna Sigrún Thorarensen 'A heima að Gyðufelli 10 111 rvk

s 5673829

Oliver H Oliversson

skrifaði þann 15/10/09 klukkan 18:35

Nú vantar mig smá uppl.
Getur einhver gefið mér upplýsingar hvar Jóhanna Thorarensen býr, það Jóhanna dóttir
Valda og Hildar og systir Adolfs sem bjuggu á Gjögri.
Kær kveðja Oliver.
P.S. Alltaf jafn góð síða þessi og gaman að fylgjast með fréttum frá þessu svæði.
Langar helst að flytja þangað norður.

stina@aknet.is

skrifaði þann 19/09/09 klukkan 03:29

Góð síða hjá þér Jóbjörn. Ég fylgist reglulega með því sem er að gerast þarna í Árneshreppnunum.

IHJ

skrifaði þann 16/06/09 klukkan 07:07

Góðra daga og framtíðar óska ég þér og heimasíðu þinni.
Sólríkan dag fengum við þátttakendur í fyrirlestra- og skemmtiferð um sveitina síðastliðinn laugardag og enn var sól þegar okkur var ekið til gistingar í Norðurfjörð upp úr miðnætti.
Bestu kveðjur frá Inga Heiðmari Jónssyni

Guðmundur S Ingimarsson úr Hafnarfirði

skrifaði þann 22/05/09 klukkan 06:19

Frábær síða, vel gerð og skilvirk. Gaman fyrir áhugamann um strandir að geta setið í borginni og fyllst sælunni að norðan. Gangi þér vel með verkefnið.

Elísabet Kristín Jökulsdóttir

skrifaði þann 12/05/09 klukkan 00:00

Góða kvöldið,

mögnuð síða, falleg og skilvirk, fínir drættir, ekki þó búin að skoða í hvern krók og kima, saknaði frétta frá jarðarför Guðmundar í Ávík en það á kannski eftir að koma, en þessi síða er greinilega hið þarfasta þing, og verð ég örugglega fastagestur...

svo mætti auðvitað skrifa frétt um að ísbjarnardrottningin sjálf og ljóðskáldið og ég veit ekki hvað er nú mætt til Trékyllisvíkur sem kattahirðir hans hátignar bróður míns og mágkonu, og lítur nú fram og aftur eftir þremur köttum þeirra og bíður þess að frænka hennar Vííí komi í heiminn,

en það er til saga í smásagnasafni eftir undrritaða sem heitir Rúm eru hættuleg og gerist á Seljanesi.

það er einsog ég hafi verið hér í gær þótt sautján ár síðan ég kom síðast, það er útaf því ég er hér alltaf í huganum, ég sofna alltaf á Seljanesi á kvöldin, eða þá að ég er að syngja fyrir æðarfuglinn á klettunum, en það er yndislegt að koma, ég er búin að fá eitt eða tvö einmanaköst, annars bara verið í skýjunum að lesa, skrifa og hverfa á vit hinnar dulvituðu goðsögu og reyna að ráða í gátuna: Afhverju er ég hér, - en mestmegnis segjandi einsog búddarnir: Ég er hér.

Mig langar að flytja leikrit í Félagsheimilinu, reyndar langað til þess nokkuð lengi, ég læt örugglega verða af því, ef guð lofar, -

Jæja, ég ætla ekki að gera alla vitlausa með blaðrinu í mér, frekar að ég geri alla hamingjusama með því,

og til hamingju með síðuna,

kær kveðja, Elísabet

Jón Bjarnason

skrifaði þann 14/02/09 klukkan 10:16

Kæru frændur og vinir í Árneshreppi.
Mikið var ánægjuleg sú ákvörðun vegamálastjóra að mokað skyldi einu sinni í viku norður í Árneshrepp yfir vetrarmánuðina. Þar með var felld úr gildi fyrrri ákvörðun um að ekkert skyldi mokað norður þá mánuði. Íbúarnir, hreppsnefndin og samgöngunefnd hreppsins sóttu þetta réttlætismál af mikilli einurð. Ég beitti mér þar sem ég gat til þess að þessi mokstur kæmist á. Þetta var góð ákvörðun vegamálstjóra. Til hamngju með árangurinn af baráttunni , Árneshreppsbúar.

Gunnur S. Friðriksdóttir

skrifaði þann 29/01/09 klukkan 22:16

Hæ, það er aldeilis flott nýja húsið á Finnbogastöðum. alveg eins og höll.
Vona að þið hafið það gott þarna fyrir norðan skeið og gaffal eða hvað var það sem þið sögðuð (búin að gleyma því). Bið að heilsa öllum sem ég þekki.

Lýður Sörlason

skrifaði þann 10/01/09 klukkan 22:55

Um leið og óska Jóni og Sigga í Litlu 'Avík ósk um gleðilekt nýtt ár með þaklæti fyrir það liðna. Óska ég öðrum 'Arneshreppsbúum þess hins sama. 'Eg er þakklátur fyrir að fá fréttir að heiman, en veit að ekki er hægt að gera öllum til hæfis.Mér finndist t.d. forvitnislegt að vita meira um uppbyggingju á Finnbogastöðum? Annars allt í mjög góðu og megi góður Guð blessa 'Arneshreppsbúa á komandi ári. Guð blessi okkur öll.

Hörður frá Stóru Ávík

skrifaði þann 09/01/09 klukkan 00:09

Gleðilegt ár og þakka gömlu árin
þakka þér fyrir siðuna og gaman væri að heyra meira af mannlífunu úr þokusveit
og gangi ykkur allt í haginn

kveðja Hörður í Galtarvík

Torfi Þ. Guðmundsson frá Ófeigsfirði

skrifaði þann 01/01/09 klukkan 14:03

Óska öllum Árneshreppsbúum gleðilegs nýs árs um leið og ég vona að kreppan nái ekki að bíta ykkur að neinu ráði. Þakka þér Jónbjörn fyrir að halda úti þessarri ágætu vefsíðu sem ég heimsæki daglega til að fá fréttir úr sveitinni.
Bestu kveðjur.

Jón Bjarnason

skrifaði þann 01/01/09 klukkan 12:13

Heill og sæll Jón Guðbjörn, kæru Árneshreppsbúar og allir lesendur þinnar ágætu heimasíðu, Litlahjalla. Við óskum ykkur öllum farsældar á nýju ári með kærri þökk fyrir góðar stundir fyrr og síðar. Bátsferðin frá Norðurfirði að Horni og móttökurnar í Reykjarfirði í sumar er okkur ógleymanleg.

Með djúpri virðingu fyrir því samfélagi, byggð og lifandi menningu sem þið standið svo dyggilega vörð um og ræktið. Byggðin í Árneshreppi gerir Ísland stærra.

Bestu kveðjur til þín Jón og þökk fyrir framtak þitt og seiglu.
Hlökkum til að sjá ykkur sem fyrst á nýju ári.

Ingibjörg Kolka og Jón Bjarnason

Guðjón Ólafsson

skrifaði þann 24/12/08 klukkan 22:38

Gleðileg jól
ég og mín fjölskylda óskum þér og öllum árneshreppsbúum nær og fjær gleðilegra jóla og farsælds komandi árs án kreppu. :-)

Daníel Guðjónsson

skrifaði þann 24/12/08 klukkan 15:01

Kæru bræður í Litlu-Ávík, vinir og frændfólk í Árneshreppi.
Ég óska ykkur öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.
Ég fylgist reglulega með síðunni til að fá fréttir úr sveitinni og
vona að þær haldi áfram eins og verið hefur.

Magnús Ólafs Hansson

skrifaði þann 24/12/08 klukkan 11:41

Ágæti Jón Guðbjörn og aðrir góðir vinir í Árneshreppi á Ströndum norður.

Gleðilega jólahátíð og farsæld á nýju ári í Guðs friði.

Þess óska,
Magnús Ólafs Hansson og fjölskylda
Patreksfirði

Emil Thorarensen

skrifaði þann 19/12/08 klukkan 11:20

Heill og sæll Jón Guðbjörn.

Takk fyrir skemmtilega og nytsama heimasíðu, sem flytur svo ótrúlega margar fréttir
og fróðleik úr þessu fámenna og afskipta sveitarfélagi.

Landsbyggðin hefur ávallt verið undirstaða byggðar á Íslandi og verður áfram.

Árneshreppur lengi lifi.

Jólakveðjur til allra Árneshreppsbúa.

Hjálmar Ólafsson

skrifaði þann 27/10/08 klukkan 15:17

Gaman að sjá vefsíðu frá þessu landssvæði þar sem menningin ríkir. Í það eina skipti sem ég hef heimsótt þetta byggðarlag og þá í roki og rigningu sem breyttist síðan í sól og gott veður síðar, þá komst ég að þetta er einstakt byggðarlag. Þarna býr gott fólk og er náttúran einstök.
Ég geri mér þó grein fyrir að þarna hlýtur að vera nokkuð hart viðveru er ekki nýtur sumars. En þarna vill fólk vera og það er ekki að ástæðulausu. Það er víst. Ef meiri möguleika væri að finna þarna í atvinnumálum, myndi eflaust marga að fýsa til búsetu. Það flögrar að mér að úr þessu samfélgagi komi hlutfallslega fleiri einstaklingar háskólagengnir en úr öðrum sveitarfélögum í dreifbýli.
Gangi ykkur vel.

Guðbjartur A. Björgvinsson

skrifaði þann 24/08/08 klukkan 17:46

.Sæll Jón minn.Ég vil þakka þ'er fyrir mjög góða síðu.(Ég er gamall sveitamaður (eieinusinni sveitamaðu r alltaf sveitamaður). Ég var síðast á ferðnni hjá þér og þínum á fimmtudag er ég kom með olíu á tankana ykkar bræðra. það er alltaf jafn gaman að vera sendur í Árneshreppin ,einhvernveginer það þannig að þegar ég er kominn á bílnum í Bjarnarfjörðin ,liggur mér ekkert á lengur. Það er ekki það að ég fari að slóra, heldur hitt að hugurinn og landslagið spilar saman einhvern fegursta dúett sem um huga minn skinjar.Þetta endurtekur sig í hvert sinn sem ég er á ferð um Árneshrepp. Hlakkatilað hitta ykkur á ný.(þess verður vonandi ekki langt að bíða.)Kv. Guðbjartur.

Jökull Veigar Kjartansson.

skrifaði þann 22/08/08 klukkan 16:25

Ég rakst á þessa síðu í tengslum við frétt af nýja húsinu á Finnbogastöðum.
Bráðskemmtileg og fróðleg síða, og gott myndasafn.
Í ár er liðin hálf öld síðan ég var í sveit hjá Magnúsi og Emelíu í Veiðileysu og þess vegna ennþá ánægjulegra að detta hér inn.

Góðar kveðjur.

Emil Thorarensen

skrifaði þann 13/08/08 klukkan 22:45

Heill og sæll Jón Björn,

Til hamingju með hina nýju og flottu heimasíðu, sem flytur okkur brottfluttum
Árneshreppsbúum og öðrum velunnurum, tíðindi úr heimahögunum.

Við í fámenninu verðum að standa saman og þess vegna veit ég að þú munir ná vinsamlegum sáttum við Ívar frænda minn og hann halda áfram að kommentera á þína athyglisverðu síðu.

Það gleður mig að vinur minn Júlíus Ó Ásgeirsson er kominn sem tengill hjá þér
en hann er mikill áhugamaður um myndir og hefur þar gott auga fyrir og á jafnframt
stutt í að rekja ættir til listamanna, enda móðursystir hans, hinn alþjóðlegi og þekkti
listamaður, í Evrópu, Gerður heitin Helgadóttir, sem m.a. annar skapaði listaverkið utan
á Tollhúsinu við Tryggvagötu svo og Gerðarsafn í Kóavogi er kennt við.

Júlíus hefur heimsótt Gjögur og þar með Árneshrepp nokkrum sinnum, oftast með Hilmari F. Thorarensen frá Gjögri, á ýmsum árstímum, og jafnan hrifist af fegurð fjallanna og nátturunnar, til fjalls og fjöru hefur þá myndað eins og honum er einum
lagið

Bkv.
Emil Thorarensen

Júlíus Ó Ásgeirsson

skrifaði þann 02/08/08 klukkan 18:26

Ég heiti Júlíus Ó Ásgeirsson og starfa sem öryggisvörður hjá Secutitas. Ég er öryggisvörður í Landsbanka Íslands. Austurstræti. Við erum tveir öryggisverðir sem gætu höfuðstöðva bankanns á næturvöktum. Vinnum aðra hvrja viku og eigum frí hina vikuna.
Ég er mikill áhuga maður um ljósmyndun, einnig er ég mikill skotveiðimaður

Douglas Brotchie

skrifaði þann 27/07/08 klukkan 20:23

Frábæru myndaalbúm !
Sem vöktu góðar minningar af frábærum dögum og vikum í Víkinu hjá Munda.
Hafðu bestu þökk fyrir.

Jóhanna Heiður Gestsdóttir

skrifaði þann 17/07/08 klukkan 15:52

Til hamingju með nýja heimasíðu. Frábært framtak og virkilega gaman að geta fylgst með fréttum úr sveitinni með því að smella sér inn á litlahjallasíðuna en það geri ég reglulega.

Kveðja Jóhanna Heiður Gestsdóttir

Halldóra Bergsdóttir

skrifaði þann 03/07/08 klukkan 22:19

Frábær síða, ég vissi ekki af henni og var að kíkja í fyrsta sinn en á örugglega eftir að kíkja aftur.

Takk fyrir höfðinglegar móttökur sl. sumar, ætluðum að koma aftur í sumar en komumst ekki af óviðráðanlegum orsökum.

Bestu kveðjur
Halldóra Bergsdóttir

Loftur Jónsson, Grindavík

skrifaði þann 29/06/08 klukkan 17:38

Gaman að geta fylgst með hvað þú hefur fyrir stafni.
Kveðja, Loftur + Rúna

Sveinbjörg ókunu

skrifaði þann 25/06/08 klukkan 11:45

Til hamingju með nýju síðuna gaman að geta fylst með fréttum norðan af stöndum
kveðja Sveinbjörg.

Víðir Guðjónsson

skrifaði þann 25/06/08 klukkan 11:06

Til hamingju með glæsilega nýja síðu frændi verður ekki betra bið heilsa öllum í sveitini vonandi sjáumst við síðar í sumar Kveðja Víðir

jósep guðmundson

skrifaði þann 22/06/08 klukkan 20:52

Sæll Jón og takk fyrir spjallið um daginn.Það er nokkuð langt síðan ég skoðaði síðuna þína,en þessi nýja er alveg frábær,og það er gaman að skoða myndirnar sem þú hefur tekið,við verðum að fara að láta sjá okkur.Bestu kveðjur,Jobbi og Olla + kaffikallarnir.

Guðjón Ólafsson

skrifaði þann 14/06/08 klukkan 22:55

Sæll Jón til hamingju með nýja útlitið á síðunni þinni og gleðilegt sumar.

Bryndís Guðmundsdóttir

skrifaði þann 14/06/08 klukkan 09:26

til hamingju með nýja síðu. Fylgist alltaf með fréttum úr sveitinni:)
með kv, Bryndís frá Munaðarnesi

Jakob Gunnarsson

skrifaði þann 13/06/08 klukkan 22:34

Mér finnst þessisíða
til fyrirmyndar
Vona að það
verð framhald á

Linda Guðmundsdóttir

skrifaði þann 12/06/08 klukkan 20:55

Til hamingju með ennþá flottari fyrirmyndarsíðu. Þetta er glæsilegt hjá ykkur! Það er svo gaman að geta fylgst svona vel með öllu sem fram fer þarna heima við. Bestu kveðjur frá Akureyri, Linda.

Oliver H Oliversson

skrifaði þann 10/06/08 klukkan 11:52

Hafðu þökk fyrir frábæra nýja síðu.
Ég fylgist alltaf með nýjum fréttum hér í hverri viku, þarf að finna og senda þér
myndir frá Gjögri sem eru síðan um 1967 þegar ég var hjá Valda.
Heilsist þér og öllum þarna vel, kveðja Oliver H.

Ingibjörg Ágústsdóttir

skrifaði þann 10/06/08 klukkan 11:00

Til hamingju með glæsilega nýja síðu Jón Björn! Myndin í borðanum er aldeilis flott og allt útlit til fyrirmyndar. Frábært hjá þér að halda áfram að skrifa fréttir úr sveitinni okkar, þetta er ómetanlegt fyrir sveitarfélagið sjálft sem og burtflutta Árneshreppsbúa.
Góð kveðja frá Akureyri, Ingibjörg

Lýður Sörlason

skrifaði þann 08/06/08 klukkan 21:14

Miklu betri síða til lukku. Gangi þér allt í haginn.

Gaui og Andrea

skrifaði þann 07/06/08 klukkan 23:14

Til hamingju með nýju síðuna. k.v. úr GRINDÓ.

Hermann Guðmundsson

skrifaði þann 06/06/08 klukkan 20:00

Til hamingju með nýju síðuna, hún er glæsileg.
Kveðja úr Grindavík, Hermann og Guðný

hafst1

skrifaði þann 06/06/08 klukkan 14:53

Eg óska þér til hamingju með nýju síðuna Jón þetta er allt annað

Hilmar F. Thorarensen

skrifaði þann 04/06/08 klukkan 15:50

Til hamingju með einstaklega smekklega og magnaða heimasíðu. Þetta er stór-gott framlag til að halda og koma Árneshreppi á "kortið".

Með góðri kveðju,
Hilmar.

Daníel Guðjónsson

skrifaði þann 03/06/08 klukkan 20:28

Sæll og til hamingju með nýja útlitið á síðunni. Þetta er virkilega fínt og heilmikil framför. Vona að þú haldir áfram að flytja fréttir úr sveitinni.

Fyrri síða
1
2Næsta síða
Síða 1 af 2

Atburðir

« Mars »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31      

Úr myndasafni

  • Sundlaugin Krossnesi og hafís 15-03-2005.
  • Alexsander Hafþórsson setur eingangrun í loft.12-12-2008.
  • Litla-Ávík 10-03-2008.
  • Húsið fellt.
Vefumsjón