Fjallskil í Árneshreppi 2020.
FJALLSKILASEÐILL,
FYRIR ÁRNESHREPP ÁRIÐ 2020.
Samkvæmt fjallskilareglugerð Strandasýslu fyrirskipar hreppsnefnd Árneshrepps, fjallskil í Árneshreppi árið 2020 á eftirfarandi hátt.
Leitarsvæði séu þrjú. Réttardagur á fyrsta leitarsvæði eru í Melarétt 11. og 12.september 2020 og af öðru og þriðja leitarsvæði í Kjósarrétt laugardaginn 19.september 2020
SMÖLUN VERÐI HAGAÐ ÞANNIG:
FYRSTA LEITARSVÆÐI:
Leitardagar séu tveir. Fyrri dagana, 11. og 12.september, sé svæðið norðan Ófeigsfjarðar leitað eftir því sem þurfa þykir og komið að Ófeigsfirði um kvöldið. Seinasta daginn laugardaginn 12.september 2020, sé fjalllendið austan Húsár leitað að Reykjafjarðartagli um Sýrárdal og Seljaneshlíð. Einnig skal leita svæðið út með Glifsu, um Seljadal og Eyrardal að Hvalhamri. Féð verði rekið yfir Eyrarháls og réttað á Melum.
BJÖRN TORFASON Á MELUM 1 ER BEÐINN AÐ STJÓRNA LEITINNI
og huga að fyrirstöðu á Eyri seinni daginn.
Svæðið leiti 14 menn. Þessir leggi til menn;
Guðlaugur A. Ágústsson Steinstúni………………………………………….3 menn
Sigursteinn Sveinbjörnsson Litlu-Ávík………………………………………1 mann
Valgeir Benediktsson Árnesi 2………………………………………………….1 “
Ingólfur Benediktsson Árnesi 2………………………………………………..1 “
Björn Torfason Melum 1 …………………………………………………………6 menn
Sigursteinn Sveinbj.Litlu-Ávík og Guðlaugur Á. Steinstúni………. 1 mann
Guðlaugur og Ingólfur í Árnesi 2………………………………………………1 “
ANNAÐ LEITARSVÆÐI: Leitin hefst við Naustvíkurgil og Búrfell, laugardaginn 19.september 2020, milli þessara staða fram að Reykjarfjarðartagli og til sjávar í Reykjarfirði og síðan til Kjósarréttar og réttað þar.
INGÓLFUR BENEDIKTSSON ÁRNESI 2 ER BEÐINN AÐ STJÓRNA LEITINNI
Svæðið leiti 16 menn. Þessir leggi til menn;
Sigursteinn Sveinbjörnsson Litlu-Ávík……………………………………………..2 menn
Ingólfur Benediktsson Árnesi 2……………………………………………………….5 “
Guðlaugur A. Ágústsson Steinstúni…………………………………………………3 “
Kristján Albertsson Melum 2………………………………………………………….1 mann
Björn Torfason Melum 1………………………………………………………………..4 menn
Sigursteinn Litlu-Ávík og Ingólfur Árnesi 2………………………………………1 mann
ÞRIÐJA LEITARSVÆÐI:
Leitin hefst við Búrfell, laugardaginn 19.sepember 2020. Leitað verði fjalllendið frá Búrfelli út Kjósarfoldir, með Háafelli og til sjávar að Kleifará. Féð verði síðan rekið til KJósarréttar og réttað þar.
BJÖRN TORFASON MELUM 1 ER BEÐINN AÐ STJÓRNA LEITINNI.
Svæðið leiti 11 menn. Þessi leggi til men;
Sigursteinn Sveinbjörnsson Litlu-Ávík………………………………………………………2 menn
Björn Torfason Melum 1………………………………………………………………………….6 “
Ingólfur Benediktsson Árnesi 2………………………………………………………………..1 mann
Guðlaugur A. Ágústsson Steinstúni………………………………………………………….2 menn
Leitarmenn eru beðnir að hafa sambandi við leitarstjóra, hver á sínu svæði daginn fyrir leitardag. Þar sem ekki er skipulögð leit á innsta afrétti hreppsins, þ.e. innan Kleifarár er því hér með komið á framfæri, að sjálfboðaliðar eru vel þegnir til smölunar dagana áður en réttað er í Kjósarrétt. Um óskilafé gilda venjulegar fjallskilareglur.
Norðurfirði 12.ágúst 2020,
Eva Sigurbjörnsdóttir oddviti Árneshrepps.