Fjallskyl í Árneshreppi 2019.
FJALLSKILASEÐILL.
==================
FYRIR ÁRNESHREPP ÁRIÐ 2019.
Samkvæmt fjallskilareglugerð Strandasýslu fyrirskipar hreppsnefnd Árneshrepps, fjallskil í
Árneshreppi árið 2019 á eftirfarandi hátt.
Leitarsvæði séu þrjú. Réttardagur á fyrsta leitarsvæði sé í Melarétt laugardaginn 14. september 2019 og af öðru og þriðja leitarsvæði í Kjósarrétt laugardaginn 21. september 2019.
SMÖLUN VERÐI HAGAÐ ÞANNIG:
FYRSTA LEITARSVÆÐI:
Leitardagar séu tveir. Fyrri daginn, föstudaginn 13. sept. 2019, sé svæðið norðan
Ófeigsfjarðar leitað eftir því, sem þurfa þykir og komið að Ófeigsfirði um kvöldið. Síðari daginn,
laugardaginn 14. september 2019. sé fjalllendið austan Húsár leitað, að Reykjarfjarðartagli um Sýrárdal og Seljaneshlíð. Einnig skal leita svæðið út með Glifsu, um Seljadal og Eyrardal, að Hvalhamri. Féð verði rekið yfir Eyrarháls og réttað á Melum.
BJÖRN TORFASON MELUM ER BEÐINN AÐ STJÓRNA LEITINNI
og huga að fyrirstöðu á Eyri seinni daginn.
Svæðið leiti 14 menn. Þessir leggi til menn:
Guðlaugur Ágústsson, Steinstúni....................................................... 3 menn
Sigursteinn Sveinbjörnsson, Litlu-Ávík............................................. 1 mann
Valgeir Benediktsson, Árnesi 2.......................................................... 1 "
Ingólfur Benediktsson, Árnesi 2..........................................................1 "
Björn Torfason, Melum.......................................................................6 menn
Sigursteinn Sveinbörnss.Litlu-Ávík og Guðlaugur A, Steinstúni .......1 mann
Guðlaugur og Ingólfur Árnesi................................................1 mann
ANNAÐ LEITARSVÆÐI: Leitin hefst við Naustvíkurgil og Búrfell, laugardaginn 21.september 2019 milli þessara staða fram að Reykjafjarðartagli og til sjávar í Reykjarfirði og síðan til Kjósarréttar og réttað þar.
INGÓLFUR BENEDIKTSSON, ÁRNESI 2 ER BEÐINN AÐ STJÓRNA LEITINNI
Svæðið leiti 16 menn. Þessir leggi til menn:
Sigursteinn Sveinbjörnsson, Litlu-Ávík.................................................... 2 menn
Ingólfur Benediktsson, Árnesi 2................................................................ 5 menn
Guðlaugur Ágústsson, Steinstúni...............................................................3 menn
Kristján Albertsson,Melum...........................................................………..1 mann
Björn Torfason Melum …………………………………………………….4menn
Sigursteinn Litlu-Ávík og Ingólfur Árnesi..................................................1 mann
ÞRIÐJA LEITARSVÆÐI:
Leitin hefst við Búrfell, laugardaginn 21. september 2019. Leitað verði fjalllendið frá
Búrfelli út Kjósarfoldir, með Háafelli, og til sjávar, að Kleifará. Féð verði síðan rekið til Kjósarréttar og réttað þar.
BJÖRN TORFASON, MELUM ER BEÐINN AÐ STJÓRNA LEITINNI.
Svæðið leiti 11 menn. Þessir leggi til menn:
Sigursteinn Sveinbjörnsson, Litlu-Ávík.................................................... 2 menn
Björn Torfason, Melum .......................................................................... 6 menn
Ingólfur Benediktsson Árnesi......................................................................1 mann
Guðlaugur Ágústsson, Steinstúni ……………………………………….....2 menn
Leitarmenn eru beðnir að hafa samband við leitarstjóra, hver á sínu svæði daginn fyrir leitardag.
Þar sem ekki er skipulögð leit á innsta afrétti hreppsins, þ.e. innan Kleifarár er því hér með komið á framfæri, að sjáfboðaliðar eru vel þegnir til smölunar dagana áður, en réttað er í Kjósarrétt.
Um óskilfé gilda venjulegar fjallskilareglur.
Norðurfirði 21.ágúst 2019.
Beðist er velvirðingar á því hve seint leitarseðillinn er á ferðinni.
Eva Sigurbjörnsdóttir
oddviti Árneshrepps.