Fleiri fréttir

Jón G. Guðjónsson | föstudagurinn 18. ágúst 2023 Prenta

FJALLSKILASEÐILL FYRIR ÁRNESHREPP ÁRIÐ 2023.

Frá Melarétt í fyrra.
Frá Melarétt í fyrra.

Samkvæmt fjallskilareglugerð Strandasýslu fyrirskipar hreppsnefnd Árneshrepps, fjallskil í Árneshreppi árið 2023 á eftirfarandi hátt.

Leirarsvæði séu þrjú. Réttardagur á fyrsta leitarsvæði er í Melarétt 15. og 16.september 2023 og af öðru og þriðja leitarsvæði í Kjósarrétt laugardaginn 23.sepember 2023.

SMÖLUN VERÐI HAGAÐ ÞANNIG:

FYRSTA LEITARSVÆÐI:

Leitardagar séu tveir.  Fyrri dagana 15. og 16.september, sé svæðið norðan Ófeigsfjarðar leitað eftir því sem þurfa þykir og komið að Ófeigsfirði um kvöldið.  Seinasta daginn, laugardaginn 16.sepember 2023, sé fjalllendið austan Húsár leitað að Reykjarfjarðartagli um Sýrárdalog Seljaneshlíð.  Einnig skal leita svæðið út með Glifsu, um Seljadag og Eyrardal að Hvalhamri.  Féð verði rekið yfir Eyrarháls og réttað á Melum. 

BJÖRN TORFASON Á MELUN 1 ER BEÐINN AÐ STJÓRNA LEITINNI OG HUGA AÐ FYRIRSTÖÐU Á EYRI SEINNI DAGINN.

SVÆÐIÐ LEITI 14 MENN.  Þessir leggi til menn;

Egill Kristjánsson Melum 2………………………………………………………….2 menn

Davíð Már Bjarnason Litlu-Ávík ……….…………………………………………1 mann

Valgeir Benediktsson Árnesi 2 …………………………………………………….1     “

Ingólfur Benediktsson Árnesi 2 ……………………………………………………3 menn

Björn Torfason Melum 1 …………………………………………………………….6 menn

Davíð Már Bjarnason Litlu-Ávík/Egill Kr. Melum 2……………………….1 mann

ANNAÐ LEITARSVÆÐI.: Leitin hefst við Naustvíkurgil og Búrfell laugardaginn 23.september 2023 milli þessara staða fram að Reykjarfjarðartagli og til sjávar í Reykjarfirði og síðan til Kjósarréttar og réttað þar.

INGÓLFUR BENEDIKTSSON ÁRNESI 2 ER BEÐINN AÐ STJÓRNA LEITINNI.

Svæðið leiti 16 mann. Þessir leggja til menn:

Davíð Már Bjarnason Litlu-Ávík………….…………………………………………………………….. 2 menn

Ingólfur Benediktsson Árnesi 2 ………………………………………………………………………….6 menn

Egill Kristjánsson Melum 2 …………………………………………………………………………………3 mann

Björn Torfason Melum 1 ……………………………………………………………………………………4 menn

Davíð Már Bjarnason Litlu-Ávík og Ingólfur Árnesi 2…………………………………….…….1 mann

ÞRIÐJA LEITARSVÆÐI.

Leitin hefst við Búrfell, laugardaginn 23.september 2023.  Leitað verði fjalllendið frá Búrfelli út Kjósarfoldir, með Háafelli og til sjávar að Kleifará.  Féð verði síðan rekið til Kjjósarréttar og réttað þar.

BJÖRN TORFASON MELUM 1 ER BEÐINN AÐ STJÓRNA LEITINNI.

Svæðið leiti 10 menn.  Þessir leggi til menn:

Davíð Már Bjarnason Liltu-Ávík ……….………………………………………………………….. 1 mann

Björn Torfason Melum 1………………………………………………………………………………. 6 menn

Ingólfur Benediktsson Árnesi 2 …………………………………………………………………….. 1 mann

Egill Kristjánsson Melum 2 …………………………………………………………………………….2 menn

Leitarmenn eru beðnir að hafa samband við leitarstjóra, hver á sínu svæði daginn fyrir leitardag.  Þar sem ekki er skipulögð leit á innsta afrétti hreppsins, þ.e. innan Kleifarár er því hér með komið á framfæri, að  sjálfboðaliðar eru vel þegnir til smölunar dagana áður en réttað er í Kjósarrétt.  Um óskilafé gilda venjulegar fjallskilareglur.

Norðurfirði 10.ágúst 2023,

Eva Sigurbjörnsdóttir oddviti Árneshrepps.

Athugasemdir

Atburðir

« 2024 »
« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Úr myndasafni

  • Gunnsteinn og Hilmar.
  • Bergistangi við Norðurfjörð-18-08-2004.
  • Úr Sætrakleyf eftir mokstur.Kristján á ýtunni varð að byrja uppá klettabeltinu til að byrja að moka þar niðrá veg.07-04-2009.
  • Grásteinn(Grænlandssteinn) í landi Stóru-Ávíkur 05-02-2005.
  • Séð yfir Ófeigsfjörð-Seljanes-Drangajökull.
  • Bakdyr SA hlið.18-12-2008.
Vefumsjón