Fleiri fréttir

Jón G. Guðjónsson | fimmtudagurinn 2. ágúst 2018 Prenta

Nýr sparisjóðsstjóri ráðinn til Sparisjóðs Strandamanna.

Björn Líndal, Elsa, Inga og Svanhildur. Mynd SPS.
Björn Líndal, Elsa, Inga og Svanhildur. Mynd SPS.

Stjórn Sparisjóðs Strandamanna hefur ráðið Björn Líndal Traustason í starf sparisjóðsstjóra Sparisjóðs Strandamanna. Björn Líndal er fráfarandi framkvæmdastjóri Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, en hann starfaði áður hjá Sparisjóði Húnaþings og Stranda og síðar hjá Landsbanka Íslands. Björn Líndal er með Bs. gráðu í viðskiptalögfræði frá Háskólanum á Bifröst og Ma. gráðu í skattarétti og reikningsskilum frá Háskóla Íslands. Björn tók við starfinu af Guðmundi Björgvin Magnússyni þann 1. ágúst.

„Sparisjóður Strandamanna hefur starfað frá árinu 1891 og er því 127 ára. Það eru ekki mörg fyrirtæki á Íslandi sem hafa átt svo langa og farsæla sögu. Ég tek við afar góðu búi þar sem sparisjóðurinn hefur eflst mjög á undanförnum árum og finn til mikillar ábyrgðar og auðmýktar gagnvart starfinu og sögu Sparisjóðsins,“ segir Björn Líndal. Heildareignir Sparisjóðsins skv. ársreikningi eru tæplega  3.750 milljónir króna og eigið fé um 350 milljónir króna. Stofnfjáreigendur eru 103.

Sparisjóður Kirkjubóls- og Fellshreppa var stofnaður þann 19. janúar árið 1891 en nafni hans var breytt í Sparisjóð Strandamanna árið 1995. Árið 1999 sameinaðist svo Sparisjóður Árneshrepps Sparisjóði Strandamanna. Sjóðurinn er því á meðal elstu fjármálafyrirtækja í landinu. Lengst af var starfsemin á heimili gjaldkera og þar af í rúmma fimm áratugi á Kirkjubóli. Árið 1998 keypti sparisjóðurinn húsnæði Íslandspósts á Hólmavík og flutti starfsemina þangað.

Sparisjóður Strandamanna er nú með afgreiðslur á Hólmavík og á Norðurfirði. Býður hann upp á heildarlausnir í fjármálum einstaklinga og fyrirtækja með áherslu á persónulega þjónustu. Auk þess annast hann afgreiðslu fyrir Íslandspóst á Hólmavík og hefur umboð fyrir Sjóvá Almennar tryggingar hf.

Segir í fréttatilkynningu frá Sparisjóði Strandamanna.

Á meðfylgjandi mynd eru Björn Líndal Traustason nýr sparisjóðsstjóri og starfsfólk sparisjóðsins, Elsa Sigurðardóttir gjaldkeri, þjónustufulltrúi, Ingibjörg B Sigurðardóttir, þjónusta og tryggingar og síðan Svanhildur Jónsdóttir afgreiðslustjóri. Á myndina vantar Þórólf Guðfinnsson afgreiðslustjóra útibúsins á Norðurfirði. Mynd Sparisjóður Strandamanna.

Athugasemdir

Atburðir

« 2024 »
« Mars »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Úr myndasafni

  • Húsið fellt.
  • Skip á Norðurfirði.
  • Frá Gjögri sést til Grænhóls-Víganes og Kjörvogs.
  • Kaupfélagshúsin á Norðurfirði 10-03-2008.
Vefumsjón