Fleiri fréttir

Jón G. Guðjónsson | sunnudagurinn 24. október 2010 Prenta

Ummsóknarfrestur að renna út.

Frá styrkúthlutun.Mynd Ágúst G Atlason.
Frá styrkúthlutun.Mynd Ágúst G Atlason.
Nú styttist í að umsóknarfrestur vegna seinni úthlutunar Menningarráðs Vestfjarða árið 2010 renni út. Allmargar umsóknir hafa þegar borist, en venjan er að meira en helmingur umsókna berist á lokadegi. Til úthlutunar verða um það bil 15 milljónir að þessu sinni, en frá því að Menningarráðið var stofnað á árinu 2007 hefur það styrkt fjölmörg verkefni og hafa einstakir styrkir verði á bilinu 50 þúsund til 1,5 milljón. Hægt er að sækja um stuðning við alls kyns afmarkaðra menningarverkefna.

Samkvæmt ákvörðun stjórnar Menningarráðsins verður að þessu sinni litið sérstaklega til menningarverkefna sem fela í sér eftirtalda þætti:

a. Eflingu samstarfs á sviði menningarmála á svæðinu
b. Nýsköpun í verkefnum tengdum menningu
c. Fjölgun atvinnutækifæra í tengslum við menningarstarf á svæðinu
d. Eflingu menningartengdrar ferðaþjónustu og ferðatengdrar menningarstarfsemi

Bent er á að nánari upplýsingar má finna á vefsíðu Menningarráðs Vestfjarða  þar sem meðal annars má finna úthlutunarreglur, upplýsingar um fyrri styrki og rafrænt umsóknareyðublað. Einnig gefur menningarfulltrúi Vestfjarða allar nánari upplýsingar í síma 891-7372 eða menning@vestfirdir.is
Umsóknarfrestur rennur út 27 október næstkomandi.

Athugasemdir

Atburðir

« 2024 »
« Maí »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Úr myndasafni

  • Fyrsta hollið komið út á sjó.
  • Hafís í Trékyllisvík og séð til Norðurfjarðar.
  • Agnes ÍS kominn með allann flotann í tog og siglir fyrir Nestangann.
  • Snjómokstur á Gjögurflugvelli 10-03-2008.
Vefumsjón