Fleiri fréttir

Jón G. Guðjónsson | þriðjudagurinn 19. febrúar 2013 Prenta

Umsóknarfrestur til Menningarráðs er að renna út.

Umsóknarfrestur um styrki er til og með 22. febrúar 2013.
Umsóknarfrestur um styrki er til og með 22. febrúar 2013.
Menningarráð Vestfjarða minnir á að umsóknarfrestur til ráðsins rennur út á föstudaginn kemur, 22. febrúar. Hægt er að skila inn umsóknum sem viðhengi í tölvupósti eða í gegnum vefsíðuna www.vestfirskmenning.is til miðnættis þann dag. Á vefsíðu ráðsins má einnig nálgast umsóknareyðublöð og allar leiðbeiningar. Hægt er að sækja um styrki í tveimur flokkum, bæði til afmarkaðra menningarverkefna og líka stofn- og rekstrarstyrki til menningarstofnana í fjórðungnum. Starfsemi Menningarráðsins byggist á samningi milli ríkisins og sveitarfélaga á Vestfjörðum og er tilgangur styrkjanna að efla menningarstarfsemi og menningartengda ferðaþjónustu á Vestfjörðum. Umsóknir og verkefni hverju sinni eru borin saman á samkeppnisgrundvelli. 
STOFN- OG REKSTRARSTYRKIR  
Menningarráð Vestfjarða auglýsir nú í annað skipti eftir umsóknum um stofn- og rekstrarstyrki. Umsækjendur þurfa að skila ítarlegum upplýsingum um starfsemi sína. Ákveðið hefur verið að við úthlutun stofn- og rekstrarstyrkja 2013 verði horft sérstaklega til umsækjenda sem uppfylla eitt eða fleiri eftirtalinna atriða:   
1.Stuðla að því að efla menningarstarfsemi á sviði lista, safna og/eða menningararfs.
2.Stuðla að nýsköpun í menningarstarfsemi.
3.Styðja við menningarstarfsemi sem fjölgar atvinnutækifærum á svæðinu.  
VERKEFNASTYRKIR
Jafnframt er auglýst eftir umsóknum um verkefnastyrki til afmarkaðra menningarverkefna, en vakin er athygli á að á árinu 2013 verður aðeins auglýst eftir verkefnastyrkjum í þetta eina skipti. Fylgiskjöl með umsóknum um verkefnastyrki eru afþökkuð, allt sem skiptir máli á að koma fram í umsókninni sjálfri. Menningarráð Vestfjarða hefur ákveðið að við úthlutun verkefnastyrkja 2013 verði horft sérstaklega til verkefna sem uppfylla eitt eða fleiri eftirtalinna atriða:  
# Verkefni sem efla samstarf á sviði menningarmála á Vestfjörðum.
# Verkefni sem stuðla að nýsköpun og fjölbreytni í menningartengdum verkefnum.
# Verkefni sem fjölga atvinnutækifærum á sviði menningar.
# Menningarstarfsemi sem styður við ferðaþjónustu.  
# Verkefni sem stuðla að þátttöku barna og unglinga í lista- og menningarlífi.
Umsóknarfrestur um styrki er til og með 22. febrúar 2013.   
Allar nánari upplýsingar gefur Jón Jónsson menningarfulltrúi Vestfjarða í síma 891-7372 eða í netfanginu menning@vestfirdir.is.

Athugasemdir

Atburðir

« 2024 »
« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Úr myndasafni

  • Frá brunanum.
  • Byrjað að setja þakjárn á,21-11-08.
  • Hafís við Litlu-Ávík 14-03-2005.
  • Adolfshús-05-07-2004.
Vefumsjón