Jón G. Guðjónsson | fimmtudagurinn 29. október 2009
Prenta
8% ullarverðshækkun til bænda.
BBL.is
Skrifað var undir nýtt samkomulag um ullarviðskipti í dag. Samkvæmt því hækkar verð ullar til bænda um 8% frá og með 1. nóvember nk. Rekstur Ístex hefur gengið vel á því ári sem nú er að líða (uppgjörsár þess er frá 1. nóv-31. okt) og fyrirtækið fjórfaldar hlut sinn í ullarverðinu á milli ára. Það breytti þó forsendum að miklu meira magn ullar barst til Ístex á liðnum vetri heldur en fyrri samningur gerði ráð fyrir eða 717 tonn í stað 640. Þar sem greiðslur vegna ullarnýtingar í sauðfjársamningi eru föst fjárhæð en ekki magntengd, hefur það áhrif á verðlagninguna nú.

Verð einstakra flokka verða sem hér segir:
Miðað er við verð pr. kíló af hreinni ull.
Lambsull: 648 kr./kg
H-1: 588 kr./kg
H-2, M-1-S, M-1-G og M-1-M: 527 kr./kg
M-2: 46 kr./kg
Matsgjald til bænda verður 22 kr./kg
Greiðslum til bænda verður flýtt frá því sem var í fyrra samningi og fyrirkomulag þeirra er eftirfarandi:
Fyrri greiðsla - 70% af heildarverðmæti
Ull sem skráð er í nóvember 2009 verði greidd 31. janúar 2010.
Ull sem skráð er í desember 2009 og janúar 2010 verði greidd 28. febrúar 2010.
Eftir þann tíma verði greitt í lok næsta mánaðar eftir skráningarmánuð.
Seinni greiðsla - 30% af heildarverðmæti
Ull sem skráð er fyrir 1. júlí 2010 verði greidd að fullu fyrir 1. september 2010.
Frá þessu er sagt á www.bbl.is