Fleiri fréttir

Jón G. Guðjónsson | miðvikudagurinn 11. ágúst 2010 Prenta

Aðalfundur Menningarráðs Vestfjarða 4. september 2010.

Hólmavík.Mynd © Mats Wibe Lund.
Hólmavík.Mynd © Mats Wibe Lund.

Ákveðið hefur verið í samráði við stjórn Fjórðungssambands Vestfirðinga að boða til aðalfundar Menningarráðs Vestfjarða laugardaginn 4. september  næstkomandi, í framhaldi af Fjórðungsþingi Vestfirðinga. Fundurinn verður haldinn á Hólmavík og hefst kl. 15:00, en nánari staðsetning verður kynnt síðar. Samkvæmt samþykktum Menningarráðsins velja sveitarstjórnir á starfssvæðinu fulltrúa á aðalfundar Menningarráðs Vestfjarða og fara þeir með umboð viðkomandi sveitarstjórnar í samræmi við íbúafjölda viðkomandi sveitarfélags þann 1. desember árið áður.

 

Á aðalfundi skal taka fyrir eftirfarandi mál:
 

Skýrsla stjórnar um starfsemi ráðsins á liðnu starfsári.

Ársreikningur ráðsins fyrir liðið ár lagður fram ásamt athugasemdum endurskoðenda ef einhverjar eru.

Kosin stjórn og varastjórn, og tveir skoðunarmenn reikninga. Skoðunarmenn má ekki kjósa úr hópi stjórnarmanna eða starfsmanna ráðsins.

Ráðsstjórn leggur fram tillögur að fjárhagsáætlun næsta árs og breytingar á framlögum skv. samningi við ríkið.

Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna.

Önnur mál.

Á aðalfundinum verða að þessu sinni einnig teknar fyrir breytingar á samþykktum Menningarráðsins

Athugasemdir

Atburðir

« 2024 »
« Mars »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Úr myndasafni

  • Mikil froða eða (sælöður),myndaðist í Ávíkinni í miklu brimi í óveðrinu 10. september 2012,engu líkara var en helt hefði verið fleiri þúsund lítrum af sápu í sjóinn.
  • Munaðarnes 15-03-2005.
  • Trékyllisvík 10-03-2008.
  • Frá brunanum 16-06-2008.
  • Frá höfninni á Norðurfirði 16-03-2005.
  • Áfram er steypt.06-09-08.
Vefumsjón