Jón G. Guðjónsson | föstudagurinn 30. nóvember 2018
Prenta
Aðventuhátíð
Aðventuhátíð Kórs Átthagafélags Strandamanna verður sunnudaginn 9. desember í Bústaðakirkju klukkan 16:00. Stjórnandi er Ágota Joó. Einsöngur: Snorri Snorrason. Píanó: Vilberg Viggósson. Hugvekju flytur Marta Ragnarsdóttir. Miðaverð við innganginn er 4.500 kr. fyrir fullorðna, frítt er fyrir börn hátíðargesta, 14 ára og yngri. Kaffihlaðborð er innifalið. Miðaverð í forsölu er 3.500 kr. Forsölu lýkur föstudaginn 7. desember. Vinsamlega hafið samband við Gíslínu í síma 699 8859, eða Ragnheiði í síma 616 3148, eða aðra kórfélaga til að fá miða í forsölu.