Jón G. Guðjónsson | miðvikudagurinn 4. júlí 2012
Prenta
Ættarmót á Eyri.
Næstkomandi Laugardag 7. júlí verður ættarmót afkomanda Guðjóns Guðmundssonar fyrrum hreppsstjóra og Guðjónu Sigríðar Halldórsdóttur fyrrum húsmóður,og fyrrverandi bænda á Eyri í Ingólfsfirði. Við það tilefni verður afhjúpað skilti á Eyri kl. 15:00 þar sem atvinnusaga Eyrar er sýnd í máli og myndum. Aðstandendur ættarmótsins vonast til að sjá sem flesta Árneshreppsbúa við það tækifæri.