Jón G. Guðjónsson | fimmtudagurinn 3. febrúar 2011
Prenta
Alltaf ótíð.
Þessa viku er óhætt að segja með sanni að rysjótt veðurfar hafi verið og er,helst lítur út fyrir eftir veðurspám að slakki eitthvað í veðrinu á laugardag og verði sæmilegt fram yfir næstu helgi.
Ekkert hefur verið hægt að fljúga til Gjögurs þessa viku,en síðast var flogið þangað á fimmtudaginn 27 janúar og ekkert útlit fyrir að hægt verði að fljúga fyrr en á morgun í fyrsta lagi eða jafnvel ekki fyrr en á laugardag.
Í dag er Suðvestan stormur með éljum og hárenning (skafrenning) og miklum stormkviðum.
Svona fljótt á litið hafa kviður farið upp í 34 m/s á Gjögurflugvelli og í Litlu-Ávík uppí 32 m/s þótt jafnavindur sé ekki meiri enn 20 til 23 m/s.Frostið í dag hefur verið -1 til -3 stig.
Suðvestanáttin er alltaf slæm hér um slóðir,mjög kviðótt og vindur mjög misjafn.
Versta veðrið var í morgun og fram á hádegið aðeins hægari er nú um miðjan dag en á að hvessa aftur í kvöld.