Ályktun stjórnar Fjórðungssambands Vestfirðinga samþykkt á stjórnarfundi 8. júlí 2009.
Samgöngumál.
Vestfirðingar hafa um áratugaskeið beðið eftir að lokið væri uppbyggingu nútíma vegasamgangna innan fjórðungsins og tengingu við aðra landshluta. Í gildandi vegaáætlun 2007-2010 og í mótvægisaðgerðum ríkisstjórnar á árinu 2007 vegna þorskaflasamdráttar , mátti loks sjá fyrir endann á helstu verkefnum. Vegna stöðu efnahagsmála þurfa stjórnvöld að skera niður í öllum málaflokkum og er ljóst að nýframkvæmdir í vegagerð munu dragast saman. Því verður að leggja höfuðáherslu á að við ákvarðanir um vegaframkvæmdir næstu tvö árin, verði byggðir upp þeir hlutar vegakerfisins sem setið hafa á hakanum mörg undanfarin ár. Vegir þessir eru sumir hverjir orðnir hálfrar aldar gamlir og koma í veg fyrir eðlileg samskipti milli þéttbýlisstaða á Vestfjörðum yfir vetrartímann. Þetta er staða sem engin önnur samfélög þurfa að búa við hér á landi.
Í umræðu um stórframkvæmdir á vegum hins opinbera sem viðbrögð við efnahagaástandi hefur ekki verið minnst á verkefni á Vestfjörðum. Stjórn Fjórðungssambands Vestfirðinga krefst(því þess að litið verði í þessu samhengi til tveggja verkefna,annarsvegar á framkvæmdir við Vestfjarðaveg 60 um Barðastrandarsýslur, frá Flókalundi að Bjarkalundi, og hinsvegar til jarðganga á milli Arnarfjarðar og Dýrafjarðar.
Efnahagsmál.
Á síðustu árum hefur átt sér stað uppbygging stofnana á sviði rannsókna, menntunar og nýsköpunar í opinberri þjónustu á Vestfjörðum. Þar á meðal eru verkefni sem sett voru af stað á grundvelli tillagna Vestfjarðanefndar vorið 2007 og í mótvægisaðgerðum vegna þorskaflasamdráttar. Saman tekið eru þetta ekki mörg störf talið hjá ríkinu en í héraði eru þetta mikilsverð störf sem hafa margþætt áhrif á atvinnulíf og samfélag. Á grundvelli þessara aðgerða stjórnvalda og heimamanna hefur tekist að auka fjölbreytileika í atvinnulífi á Vestfjörðum og bæta verulega við þekkingu á ýmsum sviðum. Sú uppbygging hefur reynst andsvar við viðvarandi samdrætti í sjávarútvegi og landbúnaði, með tilheyrandi fólksfækkun og minnkandi umsvifum. Í ljósi efnahagsástands er ljóst að leitað er allra leiða í sparnaði og skilningur er fyrir því í héraði, en um leið verður að gera þá kröfu að verkefnin séu skoðuð hvert og eitt fyrir sig og í því samhengi sem stofnað er til þeirra, en þau ekki tekin af í heild sinni.
Stjórn Fjórðungssambands Vestfirðinga telur að framangreindar áherslur verði kjarni í sóknaráætlun fyrir Vestfirði sem hluti af sóknaráætlun fyrir Ísland. Lýsir stjórn Fjórðungssambandsins sig á allan hátt reiðubúin til samstarfs við stjórnvöld á þeim grundvelli.