Fleiri fréttir

Jón G. Guðjónsson | föstudagurinn 5. júní 2009 Prenta

AssA, þekking & þjálfun – nýjung í ferðaþjónustu í Trékyllisvík.

Fallegt er á Ströndum.Mynd IV.
Fallegt er á Ströndum.Mynd IV.
1 af 3
Fréttatilkynning.

AssA, þekking & þjálfun er nýtt fyrirtæki í Trékyllisvík á Ströndum sem býður upp á undirbúningsnámskeið fyrir göngufólk á leið á Hornstrandir, upplifunarleiðsögn um Trékyllisvík og hópefli fyrir alla þá sem vilja eiga skemmtilegar stundir á Ströndum í sumar, hvar sem er á svæðinu frá Hólmavík norður í Ófeigsfjörð.  Þjónustan er sérsniðin að þörfum viðskiptavinarins hvað varðar áherslur, tímasetningu, tímalengd og staðsetningu.

Veganesti er undirbúningsnámskeið fyrir göngufólk á leið á Hornstrandir.  Tilvalið að staldra við þar sem vegurinn endar og óbyggðirnar taka við og undirbúa sig undir ógleymanlegt ferðalag.  Lögð er áhersla á innra ferðalagið sem á sér stað samhliða göngu um þetta einstaka svæði.  Hvernig getur þú/þið fengið sem mest út úr ferðinni?  Öðruvísi námskeið fyrir bæði byrjendur og vana. 

Upplifunarleiðsögn um Trékyllisvík.  Eftirminnileg upplifun með fjölskyldu og vinum þar sem áhersla er lögð á að staldra við og safna öðruvísi minningum í sumarfríinu.  Virk þátttaka er mikilvæg þar sem fólk fer í óvissuferð um náttúruna og fær fjölbreytt verkefni í sveitinni.  Sérstök leiðsögn fyrir barnafjölskyldur.

Strandamaðurinn sterki er hópefli fyrir ættarmót, stórfjölskyldur, ferðahópa og aðra hópa sem vilja eiga skemmtilegar stundir á Ströndum í sumar.  Leikir, keppnir, þrautir, tónlist ofl.  Hópeflið getur farið fram hvar sem er á svæðinu frá Hólmavík norður í Ófeigsfjörð.

Stofnandi fyrirtækisins, Ingibjörg Valgeirsdóttir, uppeldis- og menntunarfræðingur með MBA próf frá Háskólanum í Reykjavík, er uppalin í Árnesi II í Trékyllisvík.  Hún hefur margra ára reynslu af að ganga Strandir og Hornstrandir og hefur undanfarin ár starfað sem þjálfari í starfsmanna og stjórnendaþjálfun.  Starfsfólk fyrirtækisins sem er með yfirgripsmikla þekkingu á Norður-Ströndum og Hornströndum, er lykill að fyrsta flokks persónulegri þjónustu fyrir viðskiptavini okkar sem heimsækja þetta einstaka svæði. 

AssA, þekking & þjálfun er með aðsetur í Kört, minjar og handverk, Árnesi II, Trékyllisvík.  Hægt er að panta þjónustu og nálgast frekari upplýsingar á heimasíðu fyrirtækisins, www.assaisland.is  og í síma 451-4025. 

Athugasemdir

Atburðir

« 2024 »
« Maí »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Úr myndasafni

  • Jón Guðbjörn og Guðrún smelltu af samtímis.Og þetta varð útkoma Jóns G.
  • Krossnes-20-10-2001.
  • Úr Sætrakleyf eftir mokstur.Kristján á ýtunni varð að byrja uppá klettabeltinu til að byrja að moka þar niðrá veg.07-04-2009.
  • Krisján Guðmundsson komin með gröfuna til að grafa fyrir Orkubúið inntak.12-11-08.
Vefumsjón