Bændur hafa getað verið við heyskap. Léleg spretta.
Bændur hér í Árneshreppi hafa getað verið við heyskap þessa viku, eða frá því um liðna helgi og mikið til af þessari viku, en í gær gerði súld á annnesjum, en Veðurstofa Íslands spáir einhverri úrkomu, eða sérstaklega á laugardaginn fyrir verslunarmannahelgina, en síðan mun lagast aftur á sunnudag eða mánudag. Bændur reyna að hafa til slegið hey ef tekst að þurrka í einn dag eða svo í þessari köldu og rakasamri veðráttu, í hita sem er frá fjórum stigum í tæp níu stig þegar best lætur. Það hefur verið þurrt veður frá 27. þar til í gær að gerði þessa súld og blotnaði talsvert í liggjandi heyji á túnum,sem næstum voru tilbúin í hirðingu (rúllun). Þetta hefur gengið nokkuð sæmilega þessa viku með heyskap, þrátt fyrir þokuloft sérstaklega út á annnesjum, en oftast verið bjartara inní fjörðum, en alstaðar rofað talsvert til yfir daginn. Það er léleg spretta á þessu sem búið er að slá , og virðist ætla að verða lélegur heyfengur þetta árið, bændur eiga þó talsverðan forða síðan í fyrra, en þá var mikil spretta. Einn bær lauk heyskap í Árneshreppi á þriðjudaginn var, en það var á Kjörvogi.