Jón G. Guðjónsson | fimmtudagurinn 4. september 2014
Prenta
Bændur í heimasmölunum.
Bændur eru byrjaðir að smala heimalönd sín og verða það næstu daga. Þetta er svona á svipuðum tíma og í fyrra. Smalamenn virðast ætla að fá úrkomusamt veður allavega þessa vikuna,nema í dag. Fyrsta lögskipuð leit er á norðursvæðinu,Ófeigsfjarðarsvæðið,sem er tveggja daga leit og réttað þá í Melarétt seinni daginn þann 13.september.