Fleiri fréttir

Jón G. Guðjónsson | fimmtudagurinn 27. mars 2014 Prenta

Bændur láta telja fósturvísa.

Guðbrandur  Þorkelsson við fósturtalningu.
Guðbrandur Þorkelsson við fósturtalningu.
1 af 2

Í gær og í fyrra dag var verið að ómskoða fé hjá bændum í Árneshreppi. Flestir bændur í Árneshreppi láta telja fósturvísa í ám sínum til að vita hvaða ær verði tvílembdar eða einlembdar og jafnvel þrílembdar  eða hvað er mikið gelt,í vor í sauðburðinum. Við talninguna  er  notuð ómsjá. Guðbrandur  Þorkelsson bóndi  að Skörðum í Dalasýslu sá um ómskoðunina eða talninguna. Guðbrandur vinnur mikið við þetta í sinni heimasveit og víðar. Ljóst er að með slíkri talningu  er hér á ferðinni tækni sem fyrir fjölmörg fjárbú sýnist vera ákaflega áhugaverð til að nýta. Augljósustu nýtingamöguleikar tengjast skipulagningu fóðrunar á síðari hluta meðgöngutíma ánna auk þess sem að slík vitneskja á víða að geta skapað mikla möguleika til að skipuleggja alla vinnu á sauðburði. Þetta er fimmta árið í röð sem bændur hér í Árneshreppi láta ómskoða til að telja fósturvísa.

Athugasemdir

Atburðir

« 2024 »
« Júlí »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31      

Úr myndasafni

  • Veggir feldir.
  • Borgarísjaki ca 12 km NNA af Litlu-Ávík og 6 km A af Sæluskeri.
Veðurstofan setti inn píluna þar sem jakinn er.
  • Borgarísjaki 15 til 18 km NNA af Liltu-Ávík 29-09-2002.
  • Mikil froða eða (sælöður),í Ávíkinni 10 setember 2012 í norðan brimi.
  • Bryggjan á Gjögri.
  • Mundi og Björn fara að setja lista í loft:19-02-2009.
Vefumsjón