Jón G. Guðjónsson | föstudagurinn 19. október 2012
Prenta
Bensínstöð væntanleg á Skeiði á Hólmavík.
Framkvæmdir standa nú yfir á Skeiði á Hólmavík, en þar á að koma bensínstöð frá ÓB. Lóðin sem úthlutað hefur verið undir stöðina er við veginn inn í þorpið, framan við höfuðstöðvar Orkubús Vestfjarða á Hólmavík. Um er að ræða sjálfsafgreiðslustöð, en stöðvar ÓB eru reknar af Olíuverslun Íslands hf. Fyrir á Hólmavík er bensínstöð N1. sem er rekin er í samvinnu við Kaupfélag Steingrímsfjarðar. Frá þessu er sagt á vefnum www.strandir.is ,þar má einnig sjá fleiri myndir hér.