Jón G. Guðjónsson | miðvikudagurinn 21. janúar 2015
Prenta
Bókakaffi í félagsheimilinu.
Nemendur og starfsfólk Finnbogastaðaskóla héldu bókakaffi í félagsheimilinu í Trékyllisvík í gærkvöldi. Þar lásu nemendur og starfsfólk skólans upp úr nýjum bókum,og fóru með ljóð. Skemmtunin hófst klukkan 21:00 í gærkvöld,veglegir bókavinningar voru í boði í happdrætti,og léttar veitingar voru. Allur ágóði rennur í ferðasjóð nemanda Finnbogastaðaskóla.