Djúpavíkurdagar 13 til 15 Ágúst.
Þar verða hverskyns tónleikar og listsýningar í gangi að venju.
Meðal annarra kemur hljómsveitin Hraun fram með Svavar Knút í fararbroddi.
Í ár fagnar Hótel Djúpavík 25 ára afmæli sínu.Og var ýmislegt gert í dagskrá sumarsins vegna þessa tímamóta Hótels Djúpavíkur.
Ekta fjölskylduhátíð framundan á Hótel Djúpavík um næstu helgi.
Hér er svo dagskrá Djúpavíkurdaga:
Föstudagur 13.ágúst.
Kl. 19:00-21:00 Á þessu föstudagskvöldi bjóðum við upp á óhefðbundið kvöldverðar-hlaðborð.
Kl. 22:00 Kvöldkaffi í boði hótelsins.
Kl. 23:00 Kvöldferð í verksmiðjuna í fylgd með Héðni, sennilega fyrsta skoðunarferð sem farin hefur verið að kvöldi til þar í gegn.
Laugardagur 14.ágúst.
Kl. 11:00 Kerlingar fleyttar í fjörunni fyrir framan hótelið. Tekst okkur að setja heimsmet í að fleyta kerlingar í þetta sinn?????
Kl. 14:00 Víkingaspilið: Leikur sem farið verður í á grasflötinni framan við hótelið. Hentar öllum aldurshópum.
Kl. 16:00 Sjóferð á Djúpfara.
Kl: 18:00 Opnun sýningar Anthony Bacigalupos og Tim L. Scafers í verksmiðjunni.
Kl. 19:00 Hefst okkar fræga fiskréttahlaðborð sem verður óvenju glæsilegt að þessu sinni. Verð er kr. 4.000,- Svavar Knútur og Hraun munu taka nokkur lög á meðan á borðhaldi stendur.
Kl. 22:00 Tónleikar Hrauns og Svavars Knúts verða fjörugir samkvæmt venju. Aðgangseyrir er kr. 1.500,-
Kl. 00:00 Samkomulok verða samkvæmt hefðinni og verður sungið og spilað fram á nótt ef veður ofl. leyfa.
Sunnudagur 15.ágúst.
Kl. 14:00 Hið marglofaða kökuhlaðborð hótelsins
Kl. 21:30 Rúsínan í pylsuendanum verður svo kvöldvökustemning með trúbadúrunum Svavari Knúti og Jona Byron frá Ástralíu. Notaleg kvöldstund fyrir alla.
Einnig eru skemmtilegar sýningar sem standa yfir í Djúpavík:
"Áfram með smjörlíkið" eftir Hlyn Hallsson og Jónu Hlíf Halldórsdóttur.
"Pictures and their sounds" eftir Claus Sterneck
Ljósmyndasýning Boga Leiknissonar.