Fleiri fréttir

Jón G. Guðjónsson | fimmtudagurinn 3. apríl 2014 Prenta

Dreifing á raforku gæti lækkað um 20%.

Tafla- dreifingarkosnaðar.
Tafla- dreifingarkosnaðar.
1 af 2

Allt frá því að ný raforkulög tóku gildi árið 2005, með aðskilnaði orkufyrirtækja í dreifiveitur og sölufyrirtæki, hefur dreifikostnaður raforku í dreifbýli hækkað langt umfram það sem þekkist í þéttbýli. Stjórnvöld hafa leitað leiða til að lækka raforkuverð í dreifbýli til jafns við það verð sem er hæst í þéttbýli. Veitt hefur verið sérstakri fjárveitingu til að jafna þennan kostnað, svokallað dreifbýlisframlag. Fyrir Alþingi  liggur frumvarp sem gerir ráð fyrir að dreifbýlisframlagið hækki á næstu þremur árum þannig að dreifing raforku í dreifbýli verði til samræmis við dreifikostnað í þéttbýli. Þessu verður mætt með jöfnunargjaldi sem leggst á hverja kWst hjá almennum notendum sem nemur 10 aurum á kWst á ári á næstu þremur árum.

Á fjárlögum ársins 2014 er varið 544 m.kr til jöfnunar kostnaði við dreifingu raforku sem er aukning um 304 m.kr. frá árinu á undan. Fyrir notanda með niðurgreidda rafhitun í dreifbýli getur þetta þýtt allt að 20% lækkun á þeim hluta raforkureikningsins sem kemur frá dreifiveitu en söluþátturinn er óbreyttur. Heildarreikningurinn lækkar því um 8,7% og gera má ráð fyrir að hann eigi eftir að lækka enn frekar á komandi árum. Í töflunni hér með er sýnt hvernig þetta kemur fram hjá almennum notanda hjá RARIK með heildarnotkun upp á 40.000 kWst/ári. Niðurstaðan er mjög svipuð hjá Orkubúi Vestfjarða.

Athugasemdir

Atburðir

« 2025 »
« Júní »
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Úr myndasafni

  • Finnbogastaðir fyrir brunann.
  • Vatn sótt.
  • Maddý-Sirrý og Siggi.
  • Gönguhurð í bílskúr,og Ástbjörn smiður,19-11-08.
  • Byrjað að safna saman flotunum út af Lambanesi.
  • Þórólfur-Mundi-Úlfar og Pétur.
Vefumsjón