Fleiri fréttir

Jón G. Guðjónsson | þriðjudagurinn 23. mars 2010 Prenta

Einmánuður byrjaði í dag.

Litla og Stóra-Ávík.Mynd Jóhannes Kristjánsson.
Litla og Stóra-Ávík.Mynd Jóhannes Kristjánsson.

Þetta er síðasti mánuður vetrar að forníslensku tímatali og hefst á þriðjudegi í 22. viku vetrar 20. - 26. mars. Um fyrsta dag hans er svipað að segja og fyrsta dag þorra og góu, að hann er helgaður annað tveggja ungum piltum eða stúlkum. Eiga viðeigandi persónur þá að vera fyrst á fætur, taka á móti einmánuði og veita öðru heimilisfólki glaðning. Hefur hann verið nefndur yngismannadagur, þar sem það á við. Hann er nefndur í Snorra Eddu og lögbókunum, en ekki í fornkonungasögunni í Flateyjarbók.

Í síðari þjóðsögum eru þorri og góa hinsvegar gerð að hjónum og börn þeirra eru einmánuður og harpa. Fyrsti dagur einmánaðar á sér hins vegar merka sögu sem samkomudagur. Það var forn venja bæði í Noregi og á Íslandi, að menn héldu fundi snemma að vorinu til og ræddu þá um garðsetningar og ýmislegt fleira varðandi sameiginleg hagsmunamál. Hér virðist þetta hafa verið fest við fyrsta dag einmánaðar. Svo er hinsvegar að sjá sem þessar einmánaðarsamkomur hafi smám saman fallið niður nema í Eyjafirði, þar sem einkum hafa verið fjallað um samskot handa fátæklingum, sem menn hétu að leggja fram, enda hefur um það leyti verið orðið nokkuð ljóst, hverjir helst voru í bjargarþroti. Um þetta er til frægt heitbréf frá 1477, en samskonar bréf eru a.m.k. til frá 1562, 1633 og 1726. Eftir heimsókn þeirra Lúðvíks Harboes og Jóns Þorkelssonar 1741-1745 var heitdagur þessi bannaður, því að slíkt helgihald viðgekkst ekki í öðrum löndum Danakonungs og ekki þótti hæfa, að Íslendingar höguðu sér á neinn hátt frábrugðið öðrum. Norðlendingar rituðu kirkjustjórnarráðinu og beiddust þess að fá heitdaginn aftur lögleyfðan, en án árangurs.
Úr sögu daganna eftir Árna Björnsson.

Athugasemdir

Atburðir

« 2024 »
« Desember »
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Úr myndasafni

  • Pétur og Össur.
  • Flugstöðin Gjögurflugvelli.
  • Söngur.
  • Platan steypt.01-10-08.
  • Borgarísjaki 15 til 18 km NNA af Liltu-Ávík 29-09-2002.
Vefumsjón