Jón G. Guðjónsson | mánudagurinn 9. febrúar 2015
Prenta
Ekkert flogið í viku.
Ekki hefur verið hægt að fljúga á Gjögur í viku,en síðast var flogið á mánudaginn 2 febrúar vegna veðurs,mikið hvassviðri hefur verið og eða stormur af suðvestri. Flugfélagið Ernir eru búnir að aflýsa flugi til Gjögurs í dag. Ekki lítur neitt út fyrir flugveður fyrr en á fimmtudag. Nú er að gæta mjólkurskorts í útibúi Kaupfélags Steingrímsfjarðar á Norðurfirði,og ýmislegt annað fer að vanta.