Fleiri fréttir

Jón G. Guðjónsson | laugardagurinn 21. janúar 2017 Prenta

Eru selir gáfaðir?

Selurinn forvitni á skeri fyrir neðan bæinn.
Selurinn forvitni á skeri fyrir neðan bæinn.
1 af 2

Já vefritari Litlahjalla verður að álíta það að selir séu mjög gáfaðir. Þetta hefur Jón G Guðjónsson í Litlu-Ávík sannreynt, því sami selurinn er æði oft á skerjunum fyrir neðan bæinn í Litlu-Ávík, Jón þekkir selinn á smá bletti sem er aftarlega á hreyfunum. Erfitt er að nálgast selinn því hann er mjög var um sig, enn samt mjög forvitinn. Einu sinni var hann í voginum þar sem Jón mælir sjávarhita og kom næstum að fötunni sem Jón kastaði út, en um leið og selurinn sá Jón taka eitthvað upp úr vasanum eða buxunum, synti hann í burtu út fyrir svonefnd Hjallsker, en kom svo aftur lengra inn á Ávíkina. Jón telur selinn halda sig hafa verið að draga upp byssu, eða eitthvað sem gæti tortímt sér. Selurinn er mjög forvitinn eins og áður sagði, eins og þegar Sigursteinn bóndi er að saga í viðarskemmunni og dyrnar opnar, Þetta er viss tónlist í eyrum sela, þegar sögunarblaðið fer í gegnum timrið.og þá kemur selurinn langt inní lendinguna og skírður jafnvel langt upp í fjöru. Enn um leið og hann sér myndatökumann taka eitthvað upp úr vösunum, skriður hann hið snarasta í sjó fram.

Athugasemdir

Atburðir

« 2024 »
« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Úr myndasafni

  • Afmælisbarnið Margrét Jónsdóttir og Gunnsteinn Gíslason eiginmaður hennar.
  • Þegar snjór og sjór koma saman.08-01-2001.
  • Húsið fellt.
  • Í Simonarpás er aðeins ein stór spíta.
  • Árnesstapar-Reyjkjaneshyrna í bakýn. 20-01-2017.
Vefumsjón