Fleiri fréttir

Jón G. Guðjónsson | þriðjudagurinn 24. júní 2014 Prenta

Eva bauð sveitungunum til kaffisamsætis.

Oddný fyrrverandi oddviti og Eva núverandi oddviti.
Oddný fyrrverandi oddviti og Eva núverandi oddviti.

Eva Sigurbjörnsdóttir hótelstýra á Hótel Djúpavík bauð sveitungum sínum til kaffisamsætis á hótelinu í fyrra dag sunnudaginn 22. júní til heiðurs Oddnýju S Þórðardóttur fyrrverandi oddvita hreppsins. Eva var löngu búin að ákveða þetta áður en hún vissi að hún yrði næsti oddviti Árneshrepps. Oddný var oddviti Árneshrepps í átta ár eða tvö kjörtímabil og Eva var varaoddviti síðustu fjögur árin. Eva hélt smá tölu og þakkaði Oddnýju fyrir frábær störf í þágu hreppsins og gott samstarf við alla í fyrri hreppsnefnd. Oddný Þ þakkaði einnig fyrra samstarfs fólki sýnu fyrir gott samstarf og óskaði nýjum oddvita velgengni í nýju starfi. Vel var mætt af hreppsbúum í kaffisamsætið á Hótel Djúpavík.

Athugasemdir

Atburðir

« 2023 »
« Mars »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Úr myndasafni

  • Lokað þak inni.12-11-08.
  • Vantar pappa á sumstaðar.13-11-08.
  • Hilmar Hjartarson frá Steinstúni þenur harmonikuna.
  • Fell-06-07-2004.
  • Borgarísjaki sést frá Litlu-Ávík. 26-09-2017.
Vefumsjón