FJALLSKILASEÐILL 2013.
Samkvæmt fjallskilareglugerð Strandasýslu fyrirskipar hreppsnefnd Árneshrepps, fjallskil í Árneshreppi árið 2013 á eftirfarandi hátt: Leitarsvæði séu þrjú. Réttardagur á fyrsta leitarsvæði sé í Melarétt laugardaginn 14. September 2013 og af öðru og þriðja leitarsvæði í Kjósarrétt laugardaginn 21. Sepember 2013. SMÖLUN VERÐI HAGAÐ ÞANNIG: FYRSTA LEITARSVÆÐI: Leitardagar séu tveir. Fyrri daginn, föstudaginn 13. sept. 2013, sé svæðið norðan Ófeigsfjarðar leitað eftir því, sem þurfa þykir og komið að Ófeigsfirði um kvöldið. Síðari daginn, laugardaginn 14. september 2013,sé fjalllendið austan Húsár leitað, að Reykjarfjarðartagli um Sýrárdal og Seljaneshlíð. Einnig skal leita svæðið út með Glifsu, um Seljadal og Eyrardal, að Hvalhamri. Féð verði rekið yfir Eyrarháls og réttað á Melum. Nánar hér til vinstri á síðunni undir Fjárleitir 2013.