Fleiri fréttir

Jón G. Guðjónsson | mánudagurinn 19. ágúst 2013 Prenta

FJALLSKILASEÐILL 2013.

Frá Melarétt í fyrra.
Frá Melarétt í fyrra.

Samkvæmt fjallskilareglugerð Strandasýslu fyrirskipar hreppsnefnd Árneshrepps, fjallskil í Árneshreppi árið 2013 á eftirfarandi hátt: Leitarsvæði séu þrjú. Réttardagur á fyrsta leitarsvæði sé í Melarétt laugardaginn 14. September 2013 og af öðru og þriðja leitarsvæði í Kjósarrétt laugardaginn  21. Sepember 2013. SMÖLUN VERÐI HAGAÐ ÞANNIG: FYRSTA LEITARSVÆÐI: Leitardagar séu tveir. Fyrri daginn, föstudaginn 13. sept. 2013, sé svæðið norðan Ófeigsfjarðar leitað eftir því, sem þurfa þykir og komið að Ófeigsfirði um kvöldið. Síðari daginn, laugardaginn 14. september 2013,sé fjalllendið austan Húsár leitað, að Reykjarfjarðartagli um Sýrárdal og Seljaneshlíð. Einnig skal leita svæðið út með Glifsu, um Seljadal og Eyrardal, að Hvalhamri. Féð verði rekið yfir Eyrarháls og réttað á Melum. Nánar hér til vinstri á síðunni undir Fjárleitir 2013.

Athugasemdir

Atburðir

« 2026 »
« Maí »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Úr myndasafni

  • Borgarísjaki 15 til 18 km NNA af Liltu-Ávík 29-09-2002.
  • Borgarísjaki sést frá Litlu-Ávík. 26-09-2017.
  • Flatur ísjaki frekar lár sést frá Litlu-Ávík, er um það bil 5 til 6 Km austur af Sæluskeri Og um 20 Km frá landi. 13-06-2018.
  • Næstum búið að klæða þakið.12-11-08.
  • Séð að Melum af Hlíðarhúsunum 10-03-2008.
  • Byrjað að setja þakjárn á,21-11-08.
Vefumsjón