Fleiri fréttir

Jón G. Guðjónsson | fimmtudagurinn 16. febrúar 2012 Prenta

Farþega og vöruflutningar á Gjögur árið 2011.

Frá Gjögurflugvelli 27-01-2012.
Frá Gjögurflugvelli 27-01-2012.
Nú hefur vefnum borist upplýsingar um farþegafjölda og vöru- og póstflutninga á Gjögurflugvöll fyrir árið 2011 frá Isavia.

Enn er fækkun á farþegum á milli áranna 2011 og 2010 eða 34 færri,enn umtalsverð fækkun var á farþegum á milli áranna 2010 og 2009 eða 170 farþega,og minnkun er á vöruflutningi til Gjögurs sem er langt á fjórða tonn. Farþegafjöldi á Gjögurflugvöll árið 2011 voru 235 á móti 269 árið áður,eða 12,6 % færri,þarna er átt við bæði komu og brottfararfarþega. Vöru og póstflutningar voru fyrir árið 2011.18.532 kg,enn árið 2010. 22.376 kg. Lendingar á Gjögurflugvöll fyrir síðastliðið ár voru 172 enn í fyrra 186 lendingar. Ekkert sjúkraflug var á Gjögur á liðnu ári. Það verður að koma fram og hafa í huga að ekki var flogið til Gjögurs nema einu sinni í viku í fjóra mánuði síðastliðið sumar,eða í júní júlí ágúst og september,og var það annað árið í röð. En slíkt fyrirkomulag byrjaði í júní 2010. Mikil óánægða er með þetta hjá heimamönnum og ekki síður hjá ferðafólki,um mesta ferðamannatímann,því ferðamenn geta ekki notað flugið sem skyldi frá og til Gjögurs eins og áður. Flugfélagið Ernir hafa séð um áætlunarflugið til Gjögurs síðan í ársbyrjun 2007.

Athugasemdir

Atburðir

« 2024 »
« Mars »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Úr myndasafni

  • Gunnar Njálsson-Gestur Sveinbjörnsson og Áslaug Guðmundsdóttir.
  • Borgarísjaki ca 20 km frá landi 14-09-2001.
Vefumsjón