Fleiri fréttir

Jón G. Guðjónsson | fimmtudagurinn 24. janúar 2013 Prenta

Farþega og vöruflutningar á Gjögur árið 2012.

Flugfélagið Ernir hafa séð um áætlunarflugið til Gjögurs síðan í ársbyrjun 2007.
Flugfélagið Ernir hafa séð um áætlunarflugið til Gjögurs síðan í ársbyrjun 2007.

Nú hefur vefnum borist upplýsingar um farþegafjölda og vöru- og póstflutninga á Gjögurflugvöll fyrir árið 2012 frá Isavia. Fækkun er á farþegum á milli áranna 2012 og 2011 eða 19 færri, en 2011. Umtalsverð fækkun var á farþegum á milli áranna 2010 og 2009 eða 170 farþega. Eins og áður hefur komið fram hér á vefnum. Vöru og póstflutningar jukust aðeins á milli áranna eða um 353 kg. Farþegafjöldi á Gjögurflugvöll árið 2012: voru 216 á móti 235 árið áður,eða 2.1 % færri, þarna er átt við bæði komu og brottfararfarþega. Vöru og póstflutningar voru fyrir árið 2012:18.885. kg,enn árið 2011:18.532. kg. jókst því um 1,9%. Lendingar á Gjögurflugvöll fyrir síðastliðið ár voru 170 enn árið áður 172 lendingar. Eitt sjúkraflug var á Gjögur á liðnu ári. Það verður að koma fram og hafa í huga að ekki var flogið til Gjögurs nema einu sinni í viku í fjóra mánuði síðastliðið sumar,eða í júní júlí ágúst og september,og var það þriðja árið í röð. En slíkt fyrirkomulag byrjaði í júní 2010. Mikil óánæga er með þetta hjá heimamönnum og ekki síður hjá ferðafólki,um mesta ferðamannatímann,því ferðamenn geta ekki notað flugið sem skyldi frá og til Gjögurs eins og áður. Flugfélagið Ernir hafa séð um áætlunarflugið til Gjögurs síðan í ársbyrjun 2007.

Athugasemdir

Atburðir

« 2024 »
« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Úr myndasafni

  • Langt komið að steypa plötu.01-10-08.
  • Sirrý og Siggi.
  • Húsið fellt.
  • Mikið dregið í einu,þarf að skipta þessu í þrjár ferðir.
Vefumsjón