Fleiri fréttir

Jón G. Guðjónsson | sunnudagurinn 25. janúar 2015 Prenta

Farþega og vöruflutningar á Gjögur árið 2014.

Flugfélagið Ernir hafa séð um áætlunarflug til Gjögurs síðan í ársbyrjun 2007.
Flugfélagið Ernir hafa séð um áætlunarflug til Gjögurs síðan í ársbyrjun 2007.

Nú hefur vefnum borist upplýsingar um farþegafjölda og vöru- og póstflutninga á Gjögurflugvöll fyrir árið 2014 frá Isavia.ohf. Aukning varð á farþegafjölda á Gjögur á liðnu ári um 50,68%,farþegafjöldinn var 220 á móti 146 árið 2013. Þarna er átt við bæði komufarþega og brottfarafarþega. Vöru og póstflutningar minkuðu hins vegar á liðnu ári um 2.514 kg,var 17.208 kg í fyrra á móti 19.722 kg árið 2013. Lendingar og flugtök á Gjögurflugvöll fyrir síðastliðið ár voru 168, enn árið 2013 172. Sjúkraflug voru fjögur á Gjögur á liðnu ári. Það verður að koma fram og hafa í huga að ekki var flogið til Gjögurs nema einu sinni í viku í fjóra mánuði síðastliðið sumar,eða í júní júlí ágúst og september,og var það fimmta árið í röð. En slíkt fyrirkomulag byrjaði í júní 2010. Mikil óánæga er með þetta hjá heimamönnum og ekki síður hjá ferðafólki,um mesta ferðamannatímann,því ferðamenn geta ekki notað flugið sem skyldi frá og til Gjögurs eins og áður. Flugfélagið Ernir hafa séð um áætlunarflug til Gjögurs síðan í ársbyrjun 2007.

Athugasemdir

Atburðir

« 2024 »
« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Úr myndasafni

  • Frá Gjögri 04-01-2013.
  • Múlakot í Krossneslandi.
  • Naustvík 10-09-2007.
  • Íngólfshús á Eyri-24-07-2004.
  • Einn flotinn er komin vestur fyrir Lambanesið.
Vefumsjón