Fleiri fréttir

Jón G. Guðjónsson | föstudagurinn 28. júlí 2017 Prenta

Ferðafélag barnanna í heimsókn.

Hópurinn ásamt fararstjóranum Auði Elfu Kjartansdóttur. Og Páll Guðmundsson og Sigursteinn bóndi.
Hópurinn ásamt fararstjóranum Auði Elfu Kjartansdóttur. Og Páll Guðmundsson og Sigursteinn bóndi.
1 af 2

Ferðafélag barnanna hefur komið oft undanfarin ár í Árneshrepp og halda þá til í Ferðafélagshúsinu á Valgeirsstöðum í Norðurfirði. Undanfarin ár hefur Auður Elfa Kjartansdóttir landfræðingur hjá Veðurstofu Íslands verið einn af fararstjórunum. Oftast eru haldnar kvöldvökur, og farið í ýmsa leiki, og fjöruferðir og oft er kveiktur varðeldur á kvöldin í fjörunni fyrir neðan Valgeirsstaði. Í dag var gengið á Reykjaneshyrnu sem er 316 metrar að hæð, og var þokuloft og súld með köflum, þá er oftast komið við í Litlu-Ávík og Jón G Guðjónsson veðurathugunarmaður seigir börnunum hvernig veðurarhugun fer fram. Og þá er farið í sögunarskemmuna til Sigursteins Sveinbjörnssonar bónda og rekaviður skoðaður sem kemur frá Síberíu, sem mikið er unnið úr í Litlu-Ávík. Börnin eru einnig þátttekendur í listasmiðju, þar sem eingöngu er notaður efniviður úr nánasta umhverfi, og ímyndunaraflið hefur lausan tauminn. Í þessum ferðum fá börnin að njóta sín í friðsælu umhverfi náttúrunnar á Ströndum.

Athugasemdir

Atburðir

« 2023 »
« Júní »
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30  

Úr myndasafni

  • Svalahurð,18-11-08.
  • Jón Guðbjörn les af hitamælum.
  • Úlfar og Gulli fara á slöngubátnum út í Agnesi að ná í dráttartóg.
  • Byrjað að reisa húsið.27-10-08.
  • Bara moldarhaugur þar sem húsið var.19-06-2008.
  • Allir í kaffi í Bæ hjá Guðbjörgu systur Munda.
Vefumsjón