Jón G. Guðjónsson | mánudagurinn 28. desember 2015
Prenta
Ferðin heim.
Heimildarmyndin Ferðin heim verður sýnd í Sjónvarpi RÚV klukkan 20.20 annað kvöld þriðjudagskvöldið 29 desember.
Íslensk heimildarmynd um mannlífið og náttúruna á einum afskekktasta stað Íslands; Árneshreppi á Ströndum. Í myndinni leiðir María Guðmundsdóttir ljósmyndari áhorfendur inn í daglegt líf fólks í hreppnum á árunum 2009-2014. Dagskrárgerð: Anna Dís Ólafsdóttir. Hér má sjá brot úr myndinni.