Fleiri fréttir

Jón G. Guðjónsson | þriðjudagurinn 22. október 2013 Prenta

Flogið aftur tvisvar í viku.

TF-MYV frá Mýflugi.
TF-MYV frá Mýflugi.

Nú í október byrjaði flugfélagið Ernir að fljúga aftur á fimmtudögum á Gjögur. Ernir eru með leiguflugvél frá Mýflugi til að sinna þessu flugi til Gjögurs á mánudögum og fimmtudögum.  Ekkert hefur verið flogið á fimmtudögum í sumar eða í fjóra mánuði. Ernir flugu á einshreyfils flugvél til Gjögurs í sumar á mánudögum,og það gekk misjafnlega,því sú flugvél gat ekki flogið í blindflugi. Nú kemur póstur aftur á fimmtudögum með flugi í stað þess að koma með flutningabílnum á miðvikudögum eins og í sumar. Flutningabíllinn frá Strandafrakt er einnig með áætlun áfram á miðvikudögum til Norðurfjarðar út þennan mánuð. Þannig að það verður bæði flug og flutningabíll út þennan mánuð.

Athugasemdir

Atburðir

« 2024 »
« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Úr myndasafni

  • Mynd frá Skúla Alexandersyni: sem hann sendi vefnum af hafísþökum á Reykjarfirði 1965.
  • Húsið kom í gámum.14-10-08.
  • Víganes:Í október 2010.
  • Gunnsteinn Gíslason og Ólafur Thorarensen.
Vefumsjón