Jón G. Guðjónsson | þriðjudagurinn 17. desember 2019
Prenta
Flotbryggja sleit sig upp.
Í óveðrinu 10 eða 11 desember losnaði flotbryggja í smábátahöfninni í Norðurfirði. Hún hefur slitið festingar sem eru í keðjum sem halda henni, keðjurnar eru fastar í sjávarbotninum. Talsverður órói var í höfninni í óveðrinu. Þetta var nýrri flotbryggjan, en flotbryggjurnar eru tvær í smábátahöfninni í Norðurfirði.