Flug hefst að nýju til Vestmannaeyja.
Fréttatilkynning frá Flugfélaginu Ernum.
Flugfélagið Ernir hefur gert samkomulag við Samgöngu- og Sveitarstjórnarráðuneytið um flug til Eyja þrisvar sinnum í viku, tvö flug á þriðjudögum og eitt á föstudögum. Flug í kringum hátíðirnar verður með aðeins öðrum hætti en þegar föst áætlun byrjar í upphafi nýs árs og er fólki bent á áætlun og upplýsingar um flug á vefsíðu félagsins Ernir.is
, en fyrsta flug verður nk föstudag 16.desember. Er þetta samkomulag gert til að bæta samgöngur til og frá Vestmannaeyjum yfir vetrartímann en að óbreyttu er ekki unnt að hefja flug þangað á markaðslegum forsendum. Að mati ráðuneytisins var því talið nauðsynlegt að tryggja tímabundið lágmarksþjónustu á flugi til og frá Vestmannaeyjum í vetur á meðan markaðslegar forsendur eru ekki til staðar, enda flugið mjög mikilvægt fyrir íbúa og atvinnulíf í Vestmannaeyjum.
Flugfélagið Ernir sinnti áætlunarflugi til Vestmannaeyja frá árinu 2010 til í september 2020 þegar ekki var annað í stöðunni en að leggja niður flug sökum minnkandi eftirspurnar . Það er því mikið fagnaðarefni að félagið hafi möguleika á að þjónusta svæðið aftur og vonandi er hægt að byggja upp flug til og frá Vestmannaeyjum til frambúðar og með fleiri flugferðum í viku hverri.
Félagið hlakkar mikið til að hefja sig til flugs á Eyjar og vonast eftir að sem flestir geti nýtt sér þjónustuna þó um lágmarksflug sé að ræða tímabundið.