Fleiri fréttir

Jón G. Guðjónsson | fimmtudagurinn 27. desember 2012 Prenta

Flug tókst á Gjögur.

Frá snjómokstri á Gjögurflugvelli.
Frá snjómokstri á Gjögurflugvelli.
Mikið hefur snjóað síðan eftir hádegi í gær og fram yfir hádegi í dag,það fór að stytta upp um hádegið í dag alveg eins og veðurspáin frá Veðurstofu Íslands hljóðaði upp á. Flug tókst því á Gjögur og vörur komu og farþegar komust suður sem bókaðir voru með Ernum. Mokað var frá Norðurfirði til Gjögurs og var það talsverður snjór. Einnig var mikill mokstur á Gjögurflugvelli. Mjög slæm veðurspá er framundan á morgun og aðallega á laugardaginn,nánar verður farið yfir veðurspá á morgun en fólk er beðið að fylgjast vel með veðurspám.

Athugasemdir

Atburðir

« 2024 »
« Júlí »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31      

Úr myndasafni

  • Kaupfélagið í Norðurfirði:07-02-2009.
  • Finnbogastaðir 1938-2008.Húsið brann til kaldra kola 16 júní 2008.
  • Inni lokað loftrúm.12-11-08.
Vefumsjón