Jón G. Guðjónsson | föstudagurinn 27. nóvember 2015
Prenta
Flugi aflýst á Gjögur.
Flugfélagið Ernir hafa nú aflýst flugi til Gjögurs í dag vegna veðurs, enda er Norðaustan 17 m/s til 22 m/s og snjókoma og lítið sem ekkert skyggni hné skýjahæð. Áfram er spáð hvössum vindi með snjókomu eða éljum næstu daga. Þetta er í fyrsta skipti sem þarf að aflýsa flugi sem af er vetri. Næst verður athugað með flug til Gjögurs á þriðjudaginn 1 desember.