Flugvöllurinn á Gjögri.
Undanfarin ár hefur viðhaldi á innanlandsflugvöllum ekki verið sinnt sem skyldi. Það er mikilvægt að brjótast úr þessari kyrrstöðu og ráðast í að bæta ástand mannvirkja er tengjast innanlandsfluginu. Það gerði meirihlutinn á Alþingi með afgreiðslu fjárlaga, fyrir jól.
Að frumkvæði fjárlaganefndar er nú ákveðið að arður af rekstri ÍSAVIA, komi í ríkissjóð. Ætlunin er að verja þeim fjármunum til endurbóta á innanlandsflugvöllum. Vegna regluverks er þetta aðferð til að færa til hagnað af millilandaflugi til nauðsynlegra framkvæmda innanlands.
Of lengi hefur verið dregið að ráðast í nauðsynlegar endurnýjun á flugvellinum á Gjögri. Núverandi ástand hans veldur því að ekki virðist mögulegt að nota besta mögulega flugvélakost sem hæfir flugleiðinni. Ástæðan er að klæðningu vantar á flugbrautina en efni til klæðningar bíður tilbúið.
Í breytingartillögu fjárlaganefndar kemur fram vilji meirihluta hennar til að bregðast við ályktun Fjórðungsþings Vestfjarða og ítrekaða baráttu sveitarstjórnar Árneshrepp um að ráðist verði í endurbætur á flugvellinum á Gjögri. Í nefndarátliti meirihluta fjárlaganefndar er sagt með beinum hætti að ráðast eigi í endurnýjan búnaðar og að leggja klæðningu á flugvöllinn Þetta eru mikilvæg skilaboð.
Fyrir byggðina, fyrir öryggi íbúana og ekki síður fyrir mikilvægi á góðum samgöngum er nauðsynlegt að ráðist verði sem fyrst í framkvæmdir. Ég trúi að innanríkisráðherra setji sem fyrst í gang undirbúning að þessari framkvæmd.
Haraldur Benediktsson
4. þingmaður NV – kjördæmis og nefndarmaður í fjárlaganefnd.
Greinina má einnig sjá undir aðsendar greinar hér til vinstri á vefnum.